Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Dagmar Ýr er nýr framkvæmdastjóri Austurbrúar: „Það eru forréttindi að taka við svona starfi“

Dagmar Ýr.
Dagmar Ýr.

Dagmar Ýr Stef­ánsdóttir hefur verið ráðin til að gegna stöðu framkvæmda­stjóra Austur­brúar.

Hún tekur við starfinu af Jónu Árnýju Þórðar­dóttur, sem hefur sinnt því síðan 2014.

Dagmar er með B.A. gráðu í fjölmiðla­fræði frá Háskólanum á Akureyri. Síðan 2013 hefur hún starfað sem yfirmaður samskipta og samfélags­mála hjá Alcoa Fjarðaáli. Þar hefur hún m.a. haft umsjón með samskiptum við hagsmuna­aðila, útgáfu samfélags­skýrslu, viðburðar­stjórnun, gerð auglýsinga­efnis ásamt því að sitja í framkvæmda­stjórn fyrir­tækisins og sinna verkefnum því tengdu, s.s. mannauðs­málum og rekstri.

Áður starfaði Dagmar sem forstöðu­maður markaðs- og kynningar­sviðs hjá Háskólanum á Akureyri í fimm ár og var þar áður frétta­maður hjá fjölmiðla­fyrirtækinu N4 í eitt ár. Hún er fulltrúi í háskóla­ráði Háskólans á Akureyri og situr í stjórn Stapa lífeyris­sjóðs. Auk þess hefur Dagmar setið í fagráði Uppbyggingar­sjóðs Austur­lands, Hvata­sjóðs Seyðis­fjarðar, heima­stjórn Fljótsdals­héraðs, verið fulltrúi í stjórn Álklasans að viðbættri þátttöku í ýmsum fjöl­breyttum samstarfs- og samráðs­vettvöngum á svæðis- og landsvísu.

Dagmar er fjörutíu og eins árs gömul og uppalin í Merki í Jökuldal. Hún hefur lengst af búið á Egils­stöðum en bjó um tíma á Akureyri þar sem hún stundaði nám og starfaði síðar við Háskólann á Akureyri, eins og þegar hefur komið fram.

Eigin­maður hennar er Guðmundur Hinrik Gústavsson og saman eiga þau tvo drengi, þrettán og sjö ára.

Hennar áhugamál eru hreyfing og útivist auk þess sem hún nýtur þess að fara í leikhús og sækir tónleika við öll gefin tækifæri.

„Ég er virkilega spennt að takast á við þetta verkefni,“ segir Dagmar Ýr.

„Það eru forréttindi að taka við svona starfi og breiða út fagnaðar­erindið um Austur­land. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum með starfs­fólkinu og stjórnum Austur­brúar og SSA til að gera Austur­land að enn betri stað til að búa á og heimsækja.“

Berglind Harpa Svavars­dóttir, formaður SSA og stjórnar Austur­brúar, fagnar ráðningunni og segir að mikil sátt ríki um hana.

„Jóna Árný, fráfar­andi framkvæmda­stjóri, var einstak­lega öflug í sínu starfi og skilar af sér góðu búi. Stjórn SSA og Austur­brúar er sannfærð um að Dagmar Ýr sé rétta manneskjan til að taka við af henni. Hugmyndir hennar samrýmast fram­tíðarsýn okkar, eins og hún birtist í Svæðis­skipulagi Austur­lands, og hún hefur réttu þekkinguna og reynsluna til að stýra Austurbrú áfram til góðra verka.“

Áætlað er að Dagmar Ýr komi til starfa hjá Austurbrú í júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp