Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Netsvindlarar notfæra sér andlát Davíðs Odddsonar í gróðaskyni

Lofa milljónum í nafni Davíðs í „RÚV-frétt“.

Davíð Oddsson
Davíð Oddsson Svika­hrappar nota nafn Davíðs heit­ins til að reyna að ná fé af fólki

Nýtt svindl hefur farið á kreik á Facebook þar sem reynt er að hafa fé af fólki með falsaðri frétt sem lítur út fyrir að vera frá RÚV. Í svindlinu er andlát Davíðs Oddssonar notað til að vekja athygli og byggja upp trúverðug­leika.

Um er að ræða svokallaða „gervi­frétt“ sem er sett fram með útliti og fram­setningu sem líkist frétt á vef RÚV. Þar er haldið fram að Davíð hafi skilið eftir sig leyni­legan fjár­festingar­reikning sem hafi marg­faldast í verðmæti með notkun á svokölluðum gervi­greindar­vettvangi.

Í textanum eru settar fram óraunhæfar full­yrðingar um gríðar­lega ávöxtun á skömmum tíma og lesendur hvattir til að skrá sig á fjár­festingar­síðu með lágmarks­innborgun. Þá fylgja jafnframt fölsuð ummæli og athuga­semdir frá einstaklingum með íslensk nöfn til að auka trúverðug­leika efnisins, þar á meðal frá ekkju Davíðs, Ástríður Thorarensen og Vilhjálmi Bjarna­syni, viðskipta­fræðingi og fyrr­verandi þingmanni Sjálfstæðis­flokksins.

Þá er einnig minnst á son Davíðs og Ástríðar, Þorstein og birt gervi­greindar­mynd af þeim feðgum nema hvað að „sonurinn“ er ekkert líkur hinum raun­verulega syni Davíðs.

Líkist frétt en er augljóst svindl

Í textanum eru settar fram óraunhæfar full­yrðingar um gríðar­lega ávöxtun á skömmum tíma og lesendur hvattir til að skrá sig á fjár­festingar­síðu með lágmarks­innborgun. Þá fylgja jafnframt fölsuð ummæli og athuga­semdir frá einstaklingum með íslensk nöfn til að auka trúverðug­leika efnisins, þar á meðal frá ekkju Davíðs, Ástríður Thorarensen og Vilhjálmi Bjarna­syni, viðskipta­fræðingi og fyrr­verandi þingmanni Sjálfstæðis­flokksins. ns sem ekki sóttist eftir lúxus“, „Fjármála­stefna sem enginn vissi af“ og „Baráttan um stafræna arfleið“.

Í lok „fréttarinnar“ er síðan lesendum beint í skráningar­ferli þar sem þeir eru hvattir til að leggja inn fé með loforðum um mikinn hagnað og enga áhættu, sem eru klassísk einkenni netsvindls.

Fyrir neðan fals­fréttina má svo sjá fjöldi athugasemda frá gervi­fólki sem bera íslensk nöfn.

„Jón Jónsson“ segir til dæmis:

„Þeir lögðu þetta nokkuð fljótt. Mjög kurteis stúlka hringdi í mig og útskýrði allt. Ég byrjaði með litla upphæð, 30.000 króna og núna er ég með meira en 1 milljón króna á reikningnum mínum. Ég er að fara í frí.“

Lögreglan varar við

Slík svik eru ekki ný af nálinni en hafa færst í aukana á samfélags­miðlum. Lögreglan hefur ítrekað varað við fjár­festingar­tilboðum sem lofa óraunhæfri ávöxtun, sérstak­lega þegar þau eru kynnt í dulbúningi frétta eða með stuðningi nafn­greindra einstaklinga sem hafa ekkert með málið að gera.

Almenningur er hvattur til að sýna aðgát, smella ekki á grun­samlega hlekki og forðast að skrá persónu­upplýsingar eða leggja inn fé á óþekktum síðum.

Hvernig þekkja má netsvindl

Helstu einkenni svindls af þessu tagi eru:

  • Frétt sem virðist koma frá þekktum miðli en er í raun fölsuð
  • Óraunhæf loforð um mikinn og skjótan hagnað
  • Þrýstingur um að skrá sig strax eða „tryggja sér sæti“
  • Vitnis­burðir frá óstaðfestum aðilum eða fölskum notendum
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra