Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Lögreglumaðurinn sem skráði vopnið skoðaði það ekki en fór eftir upplýsingum frá Guðjóni

þrjár heilar vikur liðu frá því að lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu varð full­kunnugt um tengsl föður ríkis­stjóra við ólöglega byssu – sem fannst við húsleit fyrir rúmum fjórum árum – þar til málinu var vísað til annars lögreglu­embættis, eins og kemur fram í frétt Vísis.

Faðir Sigríðar Bjarkar Guðjóns­dóttur ríkis­lögreglu­stjóra er Guðjón Valdimarsson; hefur hann verið til umfjöllunar fjölmiðla undan­farna daga vegna meintrar sölu hans á ólöglegum og sem og hálf­sjálfvirkum vopnum.

Dómsmála­ráðherra, Jón Gunnarsson, sagði í samtali við frétta­stofu Vísis að Sigríður Björk, þáverandi lögreglu­stjóri á höfuð­borgar­svæðinu, hafi fylgt reglum og tilkynnt um tengsl sín; hafi málið þá verið flutt til annars embættis.

Kemur fram í dóms­gögnum að vopnin voru hvorki skoðuð, og ekkert uppruna­vottorð afhent lögreglu er hún skráði vopnin á sínum tíma; þá hefur einnig komið fram að um fjörutíu óskráð vopn hafi fundist á heimili Guðjóns hans þegar húsleit var framkvæmd þar í tengslum við rannsókn á hryðjuverka­málinu svokallaða.

Í ársbyrjun 2021 var maður dæmdur í Lands­rétti fyrir að eiga breyttan hálf­sjálfvirkan riffil, sem hann keypti af Guðjóni, föður Sigríðar.

Hefur maðurinn haldið því fram frá því að lögregla gerði húsleit heima hjá honum við upphaf rann­sóknarinnar að riffillinn hafi verið breyttur – í ólöglegri mynd – þegar Guðjón seldi manninum riffilinn.

Segir hann að Guðjón hafi sannfært hann um að riffillinn væri algjör­lega löglegur þar sem hann hafi verið skráður áður en vopna­lögunum var breytt:

Fram kom í skýrslu lögreglu að maðurinn hafi við húsleit, þann 26. júní, árið 2018, nefnt Guðjón; sakað hann um að hafa breytt vopninu ólöglega.

En það var þó ekki fyrr en þremur vikum síðar sem ríkis­saksóknari fól lögreglu­stjóranum á Vestur­landi meðferð málsins; vegna áðurnefdra tengsla Sigríðar Bjarkar, sem var þá starfandi lögreglu­stjóri á höfuð­borgar­svæðinu.

Lögreglu­þjónninn sem rann­sakaði málið þessar þrjár vikur, sagðist ekkert hafa vitað um tengsl byssu­smiðsins, Guðjóns, við Sigríði lögreglu­stjóra; hann hafi ekki lesið frum­skýrsluna, þar sem komu fram tengsl Guðjóns við málið, og sagt sig frá málinu um leið og tengslin voru ljós.

Einnig kemur fram að lögreglu­maðurinn sem skráði vopnið hafi ekki skoðað það við skráningu – heldur farið eftir upplýsingum frá Guðjóni föður Sigríðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning