Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Jón greindist með sítrónustórt heilaæxli: „Þetta var rosa sjokk, þetta var bara eins og bílslys“

„Ég var ekkert þung­lyndur, ég var bara með heilaæxli,“ segir veitinga­maðurinn Jón Mýrdal sem greindist fyrir fjórum árum með risavaxið æxli í höfðinu. í vikunni hélt hann upp á fjögurra ára „afmæli“ eftir uppskurðinn.

Æxlið hafði grasserað í mörg ár og var farið að valda breyttri hegðun í fari og getu Jóns. Ýmis teikn og breytingar í fari Jóns voru farnar að gera vart við sig. Sjálfur lýsir hann sér sem orðheppnum og fljótum til svara, en það hafi verið farið. Hægst hefði verulega á öllu í fari hans og hann farinn að sofa mikið. Jón leitaði til lækna og fékk sobril og þunglyndislyf. Sjálfur taldi Jón og aðstand­endur hans að hann væri orðinn þung­lyndur og fann hann fyrir einkennum kulnunar.

Greining og aðdragandi aðgerðarinnar var snarpur. „Þetta var rosa sjokk, þetta var bara eins og bílslys,“ útskýrir Jón þegar hann er spurður út í viðbrögð aðstand­anda og hans sjálfs „Ef ég hefði þurft að bíða í marga mánuði – þá hefði ég verið mjög kvíðinn.“

Eins og áður sagði fagnaði Jón því að 4 ár eru síðan að æxlið var fjarlægt. Af því tilefni ritaði hann sérstaka færslu á Facebook og endur­birti þá texta sem hann skrifaði ári eftir uppskurðinn:

„Í gær var stór afmælis­dagur hjá mér en þá var ár síðan farið var með mig gufuruglaðan á bráða­móttökuna og ég myndaður og sítrónu­stórt heilaæxli kom í ljós. Ég var tekinn í bráða­heila­uppskurð samdægurs og æxlið var fjarlægt. Ég man ekkert eftir þessu né seinustu 2-3 vikum fyrir uppskurð,“ segir Jón og bætir við:

„Það er á þessum stundum sem maður þakkar fyrir góða fjöl­skyldu og trausta vini. Ég væri ekki á lífi ef það væri ekki fyrir ykkur kæra fólk. Minnsta álagið var á mér í þessu öllu enda alveg útá túni og man ekkert. Þetta ár hefur aðallega farið í að ná fullri heilsu og gengur það mjög vel og hefur eftirlit með mér verið minnkað og þarf ég bara að mæta í heila­myndatöku einu sinni á ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Tilkynning um slysið barst lögreglu skömmu eftir klukkan fjögur síðdegis í gær
Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt