Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ritstjóri Austurfréttar svarar frétt Moggans: „Þeir þurfa hins vegar líka að horfa inn á við“

Gunnar Gunnarsson ritstjóri Austurfréttar
Gunnar Gunn­ars­son rit­stjóri Aust­ur­fréttar Mynd: Thorsteinn Asgeirsson

Gunnar Gunnarsson ritstjóri Austur­fréttar svarar Morgun­blaðinu sem kvartar yfir boðskiptum Veður­stofu Íslands þegar kemur að viðvörunum. Gunnar spyr úr því að hans litli frétta­miðill hafi náð skila­boðum Veður­stofunnar, hvers vegna náðu stóru miðlarnir þeim ekki?

Gunnar Gunn­ars­son rit­stjóri Aust­ur­fréttar

Gunnar Gunnarsson skrifaði pistil á frétta­miðli sínum Austur­frétt, í dag þar sem hann svarar frétt Morgun­blaðsins þar sem segir að takmarkaðar viðvaranir hafi borist um snjó­flóðahættu á Aust­fjörðum aðfara­nótt 27. mars. Að aðeins hafi birst tilkynning á Facebook-síðu veður­stofunnar og því hafi stærstu vefmiðlarnir misst af þeim. En Gunnar segir að vefmiðlarnir verði að líta inn á við. Segir hann bæði rétt og eðlilegt að „setja spurninga­merki við boðskiptin“ en spyr þó þeirrar spurningar, að ef Austur­frétt, með aðeins tvo blaðamenn og enga skipulagða helgar­vakt, hafi náð viðvörunum, hvers vegna hafi stóru lands­miðlarnir ekki náð þeim. Pistilinn má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Í Morgun­blaðinu í dag er fjallað um að takmarkaðar viðvaranir hafi borist um væntanlega snjókomu og þar með snjó­flóðahættu á Aust­fjörðum aðfara­nótt 27. mars síðastliðins. Lagt er út frá því að stærstu vefmiðlar landsins hafi þar af leiðandi ekki birt upplýsingar þar um. Þeir þurfa hins vegar líka að horfa inn á við.

Þegar líða tók á sunnudag fóru að birtast frá Veður­stofunni og Vega­gerðinni viðvaranir um mögulega snjó­flóðahættu. Um kvöldmat var orðið ljóst hvert stefndi og var þá komin færsla inn á bloggsíðu ofan­flóða­deildar um að snjóflóð hefðu fallið þá um daginn.

Gul veður­viðvörun gekk í gildi fyrir Austfirði um klukkan níu. Þá var komin viðvörun við snjó­flóðahættu og meðal annars ákveðið að loka veginum um Fagradal vegna hennar klukku­stund síðar. Frá því greindi Austur­frétt. Á þeim tíma var þó ekki talin hætta í byggð og því lögð áhersla á lokun veganna.

Í frétt Morgun­blaðsins er lagt út frá því að Veður­stofan hafi aðeins birt viðvörun á Facebook og aðeins lítið brot 38 þúsund fylgjenda hennar hafi getað séð hana þar. Á móti séu Mbl.is og Vísir með 220 þúsund manns á hverjum degi. Á svipaðan hátt og lagt er út frá því að aðeins brot fylgjenda Veður­stofunnar á Facebook hafi getað séð tilkynninguna má að sama skapi velta því upp til hversu stórs hluta mark­hópsins, það er að segja Austfirðinga, lands­miðlarnir tveir hefðu náð.

Eftir á er bæði rétt og eðlilegt að setja spurninga­merki við boðskiptin. Fyrst Veður­stofan taldi rétt að senda út tilkynningu á Facebook, hefði ekki verið rétt að senda út tölvupóst á frétta­miðla og sveitar­félagið líka?

En er kannski rétt að spyrja – fyrst Austur­frétt, með enga skipulagða helgar­vakt og aðeins tvo blaðamenn, náði utan um viðvaranirnar – hvers vegna gerðu lands­miðlarnir það ekki líka? Kannski var það lukka að Austur­frétt skyldi taka einn vefrúnt fyrir svefninn og sjá viðvaranirnar sem komnar voru í loftið, einkum miðað við að vera á þessum tíma­punkti staðsett í öðru tímabelti. Að Austur­frétt væri með Veður­appið sett upp og fékk þar af leiðandi tilkynningu um gulu viðvörunina.

En kannski var það áralöng vinna í að byggja þekkingu á svæðinu sem skipti máli. Að kvöld­vaktin setti það í forgang að kanna hvað lægi að baki veður­viðvörun frekar en að endur­birta fasteigna­auglýsingar sem fréttir, eitthvert drama­kastið í borgar­stjórn eða eitthvað álíka?

Þeim til varnar má þó halda því til haga að sunnu­dagurinn 26. mars virðist hafa verið ágætis frétta­dagur, til dæmis með ferða­fólki við Vík í vanda og umræðum um vopna­væðingu lögreglunnar. Það breytir því þó ekki hver vaktar Austur­land umfram aðra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Ríkisútvarpinu bárust 34 umsóknir um starf aðstoðardagskrárstjóra
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp