Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ætar plöntur

Vil­mundur Hansen garð­yrkju­fræð­ingur fræðir les­endur um nokkrar ætar plöntur.

„Skjald­flétta er klif­ur­blóm sem skartar app­el­sínu­gulum blómum, hún er gríð­ar­lega mikið notuð víða um heim. Fræ­belgirnir eru vel ætir og blómin eru góð í salöt. Af blómunum er milt sýru­bragð, ekki ólíkt bragði af karsa. Hún er til dæmis notuð sem lækn­ing­ar­urt í Suður-Ameríku.

Vil­mundur Hansen garð­yrkju­fræð­ingur þjóð­fræð­ingur

Morg­un­frú er mikið notuð í Asíu. Krónu­blöðin af henni eru nýtt í pott­rétti og þykja góð með hrís­grjónum og sal­ati. Ég var einu sinni í Japan og fór í mat­vöru­verslun að gamni mínu og þar voru blóm af morg­un­frúm til­búin í pakk­ingum innan um græn­metið og allir þekktu hana vel sem mat­plöntu.

Morg­un­frú

Dúkablóm eða flauels­blóm eru lítil app­el­sínugul blóm og líta svipað út og skjald­flétta. Þau hafa pip­ar­keim álíkan og morg­un­frúr og vel má borða þau.

Begóníur sem margir þekkja og eru stundum kall­aðar ömmu­blómið, eru bæði til sem sum­ar­blóm og inni­blóm. Blöðin af þeim eru mikið notuð í Mexíkó, Japan og Indlandi. Þau bragð­ast eins og bitrar hunda­súrur. Þær vaxa villt í þessum löndum. Þau eru til dæmis notuð sem krydd í ýmsar kjöt­sósur, fisk­rétti og salöt. Hnúð­arnir eða rótin eru líka borðuð en hún hefur einnig verið notuð til lækn­inga í gegnum ald­irnar.

Begóníur

Ýmsar teg­undir af brám eru þurrk­aðar í Asíu og not­aðar í te, pott­rétti og ýmis­legt annað. Við þekkjum vel til bald­urs­brár sem ber hvít blóm og myndar eins­konar blóma­körfu með eitt gult auga í miðj­unni. Hún vex villt víða um land.

Bald­urs­brá

Önnur garð­planta sem vex villt hér á landi er burni­rót. Hana má skera niður og nota sem spínat, eða súrsa hana.

Einir er garð­planta sem vex villt á Íslandi. Unnið er bragð­efni úr berj­unum sem er und­ir­staðan í gini og séni­ver. Líka hægt að þurrka þau og nota sem krydd.

Haf­þyrnir er garð­planta sem gefur af sér góð app­el­sínugul ber sem hægt er að nota eins og önnur ber.

Laufin af hor­tens­íum eru þurrkuð og notuð í te.

Kornblóm eru víða notuð í salöt, eggja­kökur og fleira.

Kornblóm

Skessu­jurt er upp­á­halds­jurtin mín. Hún er frá­bær sem krydd á lamba­kjötið. Hún vex í flestum görðum hér á landi. Hentar líka vel í súpur og salöt í litlu magni.

Sýrena er fjólu­blá garð­planta. Gott er að hræra blómunum saman við sýrðan rjóma og bragð­bæta með sítrónusafa, þá verður til afbragðsí­dýfa.

Það má borða krónu­blöðin af túlíp­önum. Afbragð í kjúklinga- og græn­met­is­rétti og rækju­sa­löt.

Allir þekkja fræ sól­blóms­ins, sól­blóma­fræ, en færri vita að krónu­blöðin og blóm­vísar jurt­ar­innar eru einnig ætir og gefa svipað bragð og fræin en mild­ara.“

Umsjón / Bergþóra Jóns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni