Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Frétt Mannlífs um brottrekstur Eggerts staðfest – Stjórnin vill ekki hluthafafund um Vítalíumálið

Eggert Þór Kristófersson, forstjóra Festar og Vítalía Lazareva. Samsett mynd
Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóra Festar og Vítalía Lazareva. Samsett mynd

„Stjórn Festi hf. hafði forgöngu að samtali við forstjóra um starfslok hans fimmtudaginn 2. júní 2022. Við þær aðstæður óskað forstjóri eftir að fá að segja upp störfum í stað þess að honum yrði sagt upp, með hagsmuni sjálfs síns og félagsins í huga. Var fallist á þá mála­leitan og náðust samningar samdægurs á milli félagsins og forstjóra um starfslok hans eins og tilkynning til kaup­hallar þann dag með sér,“ segir í tilkynningu sem stjórn Festi sendi Kaup­höllinni um málið nú síðdegis.

Tilkynningin er í mótsögn við það sem fyrr hefur komið fram í þessu máli, þar sem stjórnin gaf til kynna í yfir­lýsingu að Eggert hefði haft frumkvæði að starfs­lokunum. Nú er það viðurkennt að honum hafi verið þröngvað til að hætta, eins og Mannlíf greindi frá um helgina.

Mannlíf fjallaði um málið fyrst allra miðla. Um síðustu helgi var sagt frá miklum átökum sem staðið hefðu að tjalda­baki eftir að Vítalía Lazareva sagði frá áreiti í pottaferð með viðskipta­jöfrum í árslok 2020. Tveir mannanna, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson eru í hópi stærstu hluthafa í Festi, sem rekur meðal annars Krónuna, N1 og Elko. Þórður Már vék úr stjórn Festi og Hreggviður hætti sem stjórnar­formaður Veritas vegna ásakananna. Málið hefur nú dregið dilk á eftir sér.

Það vakti mikla athygli í vikunni þegar Eggert Þór Krist­ófersson, forstjóri hjá Festi, sendi frá sér tilkynningu til Kaup­hallar Íslands um að hann hafi ákveðið að láta af störfum.

Mannlíf birti grein í gær þess efnis að hlut­hafarnir hefðu ekki vitað af brott­hvarfi Eggerts fyrr en tilkynning hafi verið send til Kaup­hallarinnar í síðustu viku. Eggert hefur starfað hjá Festi og forvera félagsins í 11 ár. Samkvæmt heimildum Mannlífs er hann afar vel liðinn, með gott orðspor í starfi. Í forstjóratíð Eggerts hefur Festi og fyrirtæki samstæðunnar skilað miklum hagnaði. Ávöxtun hluthafa hefur verið með því hæsta sem sést hefur á Íslandi frá fjármála­hruni.

Félagið segir starfslok ekki tengjast Þórði Má

Festi hf. segir starfslok forstjórans ekki tengjast Þórði Má Jóhannessyni, fyrr­verandi stjórnar­formanni félagsins.

Kaup­höllinni barst tilkynning um það fimmtudaginn 2. júní síðastliðinn að Eggert Þór hafi sagt starfi sínu hjá Festi lausu frá og með 1. ágúst næst­komandi. Fjöl­miðlar á borð við Morgun­blaðið birtu þá yfir­lýsingu athugasemda­laust.

Stjórnin heldur áfram að bera af sér að óeiningin innan félagsins snúist um mál Vítalíu og eindreginn stuðning forstjórans við baráttu hennar.

„Tenging þessa máls við mál fyrr­verandi stjórnar­for­manns, að­draganda af­sagnar hans, og fleiri vanga­veltur af þeim meiði, eiga sér hins vegar enga stoð í raun­veru­leikanum og er vísað al­gjör­lega á bug,“ segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá