Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Guðlaugur Þór brenndist illa: „Ég er með landkort af Texas á bakinu en það er allt í lagi“

Guðlaugur Þór
Guð­laugur Þór Mynd: Kazuma Takigawa

Guðlaugur Þór Þórðarson er í nýju helgar­blaði Mannlífs.Þar talar hann meðal annars um slysin, úrslitin í formanns­kjörinu, áherslumál sín, málefni norðurslóða og hælis­leitenda, skipulagða glæpa­starfsemi og loftslags­breytingar, hverju hann hefur komið til leiðar á Alþingi í gegnum árin, fjöl­skylduna og sorgina.

Guðlaugur Þór segist hafa ökkla­brotnað þegar hann var í vitlausu húsi og á leið í annað vitlaust hús og fór yfir stein­hleðslu. Þar rann hann og datt og fann strax að hann væri fótbrotinn. „Þetta var sárt en ekkert í líkingu við það að kveikja í sér,“ segir ráðherrann sem brenndist illa fyrir nokkrum árum síðan. „Þetta var skömmu fyrir jól og við vorum með kveikt á kertum hér og þar. Ég tók ekki eftir kerti í glugga­kistu sem ég stóð upp við og svo fór sem fór.“

Hversu slæmur var bruninn?
„Hann var slæmur. Hann var djúpur annars stigs bruni og ég var á spítala í tvær eða þrjár vikur. Það var miklu alvarlegra heldur en ökkla­brotið.“
Hvað með ör?
„Ég er með landkort af Texas á bakinu en það er allt í lagi.“
Hefði ráðherrann viljað hafa landakort með öðru ríki á á bakinu?
„Nei. Móður­systir mín bjó í Texas og ég fór oft þangað þannig að mér er hlýtt til Texas. Þannig að það er allt í lagi.“

Guðlaugur Þór er vanur því að verða fyrir skakka­föllum. Slasa sig.
„Það er af nógu að taka. Fyrsta æsku­minning mín er þegar maður í hvítum sloppi benti á mömmu og spurði hvaða kona þetta væri og ég sagði „Sonja Guðlaugs­dóttir“. Þá var ég höfuðkúpu­brotinn á spítala á Akranesi,“ segir hann en viðtalið má lesa í heild sinni í nýju helgar­blaði Mannlífs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning