Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Að finna von í myrkrinu – Bergdís segir sína sögu í tónum

Bergdís man vart eftir sér án þess að vera raulandi en hún hefur nú gefið út glæ­nýja plötu

Bergdís
Bergdís Tón­list­ar­konan Bergdís gefur nú út plötu sína Dark Mind Mynd: Aðsend

Tón­listin getur verið skjól. Hún getur borið sárs­auka, orðið að rödd þar sem orð duga ekki og veitt von. Í sinni fyrstu plötu leiðir Bergdís, 27 ára íslensk söng­kona og laga­höf­undur, hlust­and­ann inn í ein­lægt og per­sónu­legt ferða­lag þar sem feg­urð fæð­ist úr myrkr­inu.

Frá Danmörku til Íslands og frá rauli til laga

Bergdís fædd­ist í Danmörku en flutti til Íslands átta ára. Hún man varla eftir tíma þar sem hún var ekki að raula. Tón­listin hefur alltaf verið hluti af henni. Í mennta­skóla byrj­aði hún að glíma við and­lega van­líðan og þá varð tón­listin meira en áhuga­mál, hún varð útrás og örygg­is­net.

„Tónlist var eitt það helsta sem lét mér líða betur eða gat hjálpað við að koma út ákveðnum hugs­unum,“ segir Bergdís.

Platan sem kom óvænt en á réttum tíma

Fyrsta lagið samdi hún árið 2018 og innan við ári síðar hafði hún samið fimm lög til við­bótar. Nokkrum árum síðar, árið 2023, bauð Stefán, náinn fjöl­skyldu­vinur sem hefur þekkt hana frá fæð­ingu, henni að koma í stúdíó sem hann leigir á Granda. Stefán hefur mikla reynslu úr tón­list­ar­námi og hljóm­sveitum, og bauð Bergdísi að taka upp öll lögin sem hún hafði samið.

Það sem átti að verða ein­föld upp­taka sex laga breytt­ist fljótt í stærra ferli. Ný lög urðu til, neisti kvikn­aði, og úr varð platan ,,Dark Mind’’ og segir Bergdís að Stefán hafi verið henni mikil hvatn­ing og kennt henni margt þegar kemur að tón­list almennt

„Þetta var mjög frelsandi. Þetta var eins og að hverfa alveg inn í til­finn­ing­arnar og hjálp­aði mér mikið við að vinna úr þeim,“ segir Bergdís

Platan sjálf er ekki bara tón­list hún er úrvinnsla, speg­ill til­finn­inga og sam­bland af við­kvæmni og von.

„Ég vona að fólk finni fyrir blönd­unni af von­leysi og von“

Einn laga­texti situr djúpt í henni:

„If I say it outloud it becomes the truth, and then there’s no way to hide my ugliness from you.”

Í lög­unum má finna þá til­finn­ingu að vera ósýni­legur í eigin sárs­auka að eng­inn taki eftir því þegar maður er að drukkna. En með þess­ari plötu opnar Bergdís dyr að sínum innsta heimi og skapar teng­ingu fyrir aðra.

„Ég held að eitt af því sem ég lærði mest við að semja þessa plötu er að feg­urð getur átt sér stað jafn­vel í myrkr­inu.“

Draum­ur­inn: Tón­leikar og til­gangur

Nú þegar platan er komin út segir Bergdís að sér líði betur en hún þorði að vona. Draumar hennar eru ein­faldir en hjarta­hlýir. Að halda tón­leika, lifa líf­inu til fulls og deila tón­list­inni með fólki sem finnur sig í henni.

„Draum­ur­inn sem mann­eskja er bara að finna ánægju og lifa líf­inu til hins fyllsta,“ segir Bergdís að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027