Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Samsærisþátturinn Álhatturinn mættur á svæðið: „Ég get alveg verið vel geðveikur varðandi sumt.“

Hin heilaga þrenning
Hin heilaga þrenn­ing Mynd: Lubbi

Í gær hóf göngu sína hlaðvarps­þátturinn Álhatturinn í umsjón þeirra Guðjóns Heiðars, Hauks Ísbjarnar og Ómars Þórs.

Merki þátt­ar­ins

Mannlíf settist niður með tríóinu og ræddi við þá um nýjasta þáttinn í flóru hlað­varpanna.

Þú og félagar þínir eruð að byrja með glænýjan hlaðvarps­þátt, um hvað er hann og hvað heitið þið allir?

„Það er hlaðvarps­þátturinn “Álhatturinn” þar sem fjallað verður um samsæris­kenningar á lauf­léttum nótum. Ég heiti Guðjón Heiðar. Ég heiti Haukur Ísbjörn! Og ég heiti Ómar Þór!“

Hvernig er þátturinn byggður upp?

Ómar: „Við tökum fyrir eina kenningu í hverjum þætti. Í upphafi ferlisins setjum við upp full­yrðingu og gefum svo einkunn frá 1-10 byggt á því hversu sammála við erum henni. Svo í lok þáttarins þá gefum við aftur einkunn og sjáum þá hversu mikið afstaða okkar hefur breyst.“

Guðjón: „Þá getum við séð svona, hver er þrjóskastur, hvaða kenningar okkur finnst sennilegastar, hver er mesti álhatturinn og þar fram eftir götunum.“

Samsæris­kenningar… geturðu nefnt dæmi? Erum við að tala um eðlufólk og nasista á tunglinu og þess háttar?

Haukur: „Nasistar á tunglinu? Þetta er nú meira bullið í þér. Það er eðlu­fólkið sem býr á tunglinu! Þær útrýmdu nasistunum eftir grimmilega tungl­styrjöld seint á sjöunda áratugnum. Þetta ættir þú að vita!“

Guðjón: „Haha, já, eða sko, við værum alveg vísir til að fjalla um kenninguna um eðlu­fólkið til dæmis. Þetta þarf ekki endilega að vera eitthvað sem við trúum á sjálfir en bara eitthvað sem gæti verið áhugavert að skoða.“

Ómar: „Við munum bara fara yfir allar þessar helstu kenningar, svona á einhverjum tíma­punkti allavega. Ellefti september, JFK, Illuminati, geimverur, global warming, covid og svo framvegis. En svo munum við líka taka fyrir aðeins minna þekktari kenningar og rannsaka þær. Svo þetta verður bara ákveðið svona jafnóðum eftir því hvað við erum spenntastir fyrir.“

Og hver er mark­hópurinn?

Haukur Ísbjörn: „Markmiðið er í raun að allir geti haft gaman af að hlusta á þetta. Þetta er ekki svona samsæris­hlaðvarp sem er í einhverju stríði að reyna að sannfæra þig um eitthvað. Þarna erum við bara að rökræða hlutina og sjá hvaða kenningar okkur finnst meika mest sens, en svo höfum við líka mjög gaman að kenningum sem meika lítið sens.“

Guðjón: „Algjör­lega, mark­hópurinn er í raun bara hver sem er. Við erum svona dottnir misdjúpt ofan í kanínu­holuna og þættirnir munu bera þess merki. Ég er sennilega klikkaðastur en það er samt aldrei að vita nema Haukur og Ómar komi á óvart hvað það varðar.“

Ómar (hlær): „Ég get alveg verið vel geðveikur varðandi sumt.“

Haukur: „Jájá ég líka. Það fer alveg eftir umræðu­efninu. Svo fer það líka eftir því hvernig þú spyrð auðvitað.“

Hvað verða þetta margir þættir á mánuði? Er þetta áskriftar­þættir?

Ómar: „Við munum gefa út í annarri hverri viku, nema þáttur tvö kemur í næstu viku! Engin áskriftar­gjöld! Núll krónur á borðið, svo núll krónur á mánuði í eitt ár.“

Guðjón: „Já svo bætast auðvitað við það vextir upp á núll kr. fyrir hvern þátt.“

Fyrsti þátturinn, um hvað er hann?

Guðjón: „Í þessum fyrsta þætti fjöllum við bara um samsæris­kenningar almennt og svona okkar reynslu af þeim. Kynnum líka konseptið aðeins til sögunnar og svona okkur sjálfa.“

Haukur: „Við förum aðeins yfir það hvernig við komumst fyrst í tæri við samsæris­kenningar og hvenær við fórum svona að taka að minnsta kosti einhverjar þeirra aðeins alvarlegar. Það kom til dæmis í ljós í þessum þætti sem við höfðum ekki áttað okkur á að Guðjón hafði smá þátt í þeirri sögu hjá okkur báðum, en hann lét okkur báða hafa dvd disk sem fjallaði um árásirnar 11.september. Sú mynd átti svona eftir að hafa spila ákveðna rullu í ferlinu hjá okkur báðum.“

Ómar: „Já þarna erum við svona að kynna þetta allt saman og fara svona yfir víðan völl í þessu samhengi. Þess vegna líka komum við með næsta þátt strax eftir viku, demba okkur í kenningu, svo verða þetta tvær vikur sem líði á milli eftir það.“

Takk kærlega fyrir komuna strákar og gangi ykkur vel! Eitthvað sem þið viljið bæta við?

Guðjón: „Já bara endilega finnið okkur á Facebook, þar er kominn mjög líflegur umræðu­hópur með rúmlega 500 manns. Þar er hægt að taka þátt í könnunum og umræðum um umfjöllunar­efni þáttanna ásamt því sem þú getur komið með uppástungur og bent okkur á áhuga­verðar kenningar sem er svo aldrei að vita nema rati í þáttinn. Svo erum við á Twitter, TikTok og Instagram. Þátturinn er kominn á Spotify núna en mun svo lenda hjá Apple og YouTube þegar við erum búnir að finna út úr nokkrum tækni­legum atriðum þar!“

Ómar: „Akkurat, þetta verður á öllum helstu streymis­veitum og samfélags­miðlum! Við vonum bara að þið munið hafa gaman af að hlusta og fylgjast með Álhattinum!“

Hér er hægt að hlusta á Álhattinn:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Menning

Ein besta rappsveit Íslands­sögunnar snýr aftur á svið

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027