Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Helgi rekur flestar konur í stjórnunarstöðum á Torgi – Elín, Aðalheiður og Erla allar reknar í gær

Þremur reynslu­miklum milli­stjórnendum hjá fjölmiðla­fyrirtækinu Torg ehf. var sagt upp störfum í gær. Allt eru þetta konur og svo virðist sem ein háttsett kona hafi verið látin fjúka frá hverjum undir­fjölmiðli fyrir­tækisins, Frétta­blaðinu, DV og Hringbraut. Heimildir Mannlíf herma uppsagnirnar hafi komið mörgum á óvart innanhús. Gífurlegt tap hefur verið á rekstrinum, sem er að mestu í eigu Helga Magnússsonar.

Erla Hlyns­dóttir var rekin af DV en hún var ráðinn frétta­stjóri þar stuttu eftir að Helgi keypti fjöl­miðilinn árið 2020. Þá var hún nýhætt sem framkvæmda­stjóri Pírata. En Erla hefur komið víða við í fjöl­miðlum og hefur starfað á Stöð 2 og Frétta­tímanum auk DV. Hún er helst þekkt fyrir að hafa í þrígang kært íslenska ríkið til Mann­réttinda­dómstóls Evrópu vegna dóma sem hafa fallið henni í óhag í Hæstarétti. Öll málin vann hún á megin­landinu.

Á Frétta­blaðinu var Aðal­heiður Ámunda­dóttir rekin. Þar, líkt og Erla, hafði hún starfað sem frétta­stjóri frá því að Helgi eignaði blaðið 2020. Aðal­heiður er lögfræðingur að mennt og starfaði sem blaða­maður á Frétta­blaðinu frá árinu 2017. Þar áður, líkt og Erla, starfaði Aðal­heiður fyrir Pírata og var einnig í framboði fyrir flokkinn.

Þriðja konan sem var rekin í gær var þó enginn Pírati, heldur Elín Hirst, fyrr­verandi þingkona Sjálfstæðis­flokksins og frétta­kona í áratugi. Uppsögn hennar er helst furðuleg fyrir þær sakir að hún er nýkomin til starfa. Ráðning hennar sem rit­stjóra Frétta­vaktarinnar hjá Torgi, sjónvarps­frétta á Hringbraut, var tilkynnti í upphafi ágústs. Í þeirri tilkynningu var lögð áhersla á náið samstarf hennar og Sigmundar Ernis Rúnars­sonar aðal­rit­stjóra um árabil.

Eftir því sem Mannlíf kemst næst þá eru engar konur í stjórnunar­stöðum á öllum ritstjórnum fjölmiðla Torgs í dag. Vantraust á konum innan fjöl­miðilsins er þó ekkert nýtt og hefur fylgt fyrir­tækinu frá upphafi. Stuttu eftir að Helgi keypti Frétta­blaðið voru flestar konur í stjórnunar­stöðum reknar. Það vakti hörð viðbrögð starfs­manna árið 2020, líkt og kom fram í ítarlegri frétt Vísis um málið.  Þar kemur fram að áður en Helgi eignaðist blaðið voru konur í meirihluta þegar kom að ritstjórum og frétta­stjórum blaðsins.

Ranghermt að Elínu Hirst, ritstjóra Frétta­vaktarinnar, hafi verið sagt upp störfum. – Elín er hér með beðin afsökunar á þessum mistökum og því ónæði sem þau kunna að hafa valdið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning