Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Sjaldséðir dauðarokkarar snúa aftur

Dauðarokks­veisla haldin í Hellinum

Patronian
Patron­ian Smári Tarfur stígur á svið með bandi sínu Mynd: Aðsend

Þung­arokksunn­endur á suð­vest­ur­horn­inu eiga von á öfl­ugri tón­list­ar­upp­lifun fimmtu­dag­inn 19. febr­úar þegar haldið verður þung­arokk­s­kvöld í Hellinum í Tón­list­ar­þró­un­ar­mið­stöð­inni við Hólma­slóð á Granda. Þar stíga á svið Patron­ian, Duft, Ultra Magnus og Bergmenn, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu.

Kvöldið verður opnað af Berg­mönnum, tríói ungra tón­list­ar­manna úr Grund­ar­firði sem deila mik­illi ástríðu fyrir rokktón­list og hafa verið að láta að sér kveða.

Aðal­númer kvölds­ins er dauðarokksveitin Patron­ian, sem kemur sjaldan fram á tón­leikum. Sveitin var stofnuð árið 2021 af Smára Tarfi, gít­ar­leik­ara og söngv­ara, sem sneri þá aftur í þung­arokks­ræt­urnar eftir ferða­lag um ólíka tón­list­ar­stíla. Fyrsta plata sveit­ar­innar, Stabbed with Steel, kom út haustið 2022 og vakti strax athygli, meðal ann­ars með því að vera valin ein af tíu bestu plötum árs­ins hjá Scars & Guitars. Sveitin hefur hlotið lof fyrir beittar laga­smíðar og kraft­mikla spila­mennsku, og er því hér um ein­stakt tæki­færi að ræða fyrir aðdá­endur þung­arokks.

Duft hefur verið á miklu flugi eftir útgáfu fyrstu plötu sinnar, Altar of Instant Gratification, vorið 2024. Sveitin leikur níð­þunga blöndu af harð­kjarna- og öfgarokki þar sem grimmur og þéttur hljóð­heimur dregur upp dökka mynd af fram­tíð mann­kyns­ins.

Ultra Magnus er þriggja manna stoner- og sludge-metal sveit frá Reykja­vík, stofnuð árið 2021. Tónlist þeirra er inn­blásin af köldu og vinda­sömu veð­ur­fari lands­ins og ein­kenn­ist af þungri tón­list, hávaða og ein­beittum flutn­ingi.

Ultra Magnus

Tón­leik­arnir fara fram í Hellinum í TÞM, Hólma­slóð 2. Húsið opnar klukkan 18 og fyrsta hljóm­sveit stígur á svið klukkan 19. Miðaverð er 2.990 krónur og engin ald­urs­tak­mörk eru á við­burð­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027