Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

„Meðhöndla fullorðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geð­lækn­ir­inn Haraldur lætur allt flakka

Haraldur Erlendsson
Haraldur Erlends­son Mynd: YouTube-skjáskot

Geð­lækn­ir­inn Haraldur Erlends­son segir íslenskt sam­fé­lag hafa gengið of langt í góð­mennsku og með­virkni með þeim afleið­ingum að þraut­seigja og innri styrkur fólks fari minnk­andi. Hann segir jafn­framt geð­heil­brigð­is­kerfið löngu sprungið og telur nauð­syn­legt að leita nýrra leiða til að takast á við vax­andi geð­ræn vanda­mál.

Haraldur er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar þar sem hann ræðir meðal ann­ars geð­heil­brigði, ein­mana­leika, til­gangs­leysi og þær breyt­ingar sem orðið hafa á vest­rænum sam­fé­lögum.

„Við erum að taka burt þraut­segj­una úr fólki með því að fara of langt í góð­mennsku. Þó að það sé margt gott við þessa góð­mennsku og að harkan hér á árum áður hafi oft ekki verið neitt annað en ill­mennska erum við komin of langt í með­virkni núna,“ segir Haraldur.

Hann telur aukna áherslu á öryggi og að forð­ast áhættu geta haft nei­kvæðar afleið­ingar. Ekki sé hægt að koma í veg fyrir allar hættur í líf­inu og fólk þurfi að fá tæki­færi til að takast á við erf­ið­leika.

„Geð­læknar nú á dögum eru oft að með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn eða ung­lingar. Það vantar allan til­gang og þetta fólk hefur ekki fengið tæki­færi til að full­orðn­ast.“

Haraldur lýsir stöðu geð­heil­brigð­is­þjón­ust­unnar sem alvar­legri og segir kostn­að­inn vegna geð­rænna vanda­mála orð­inn gríð­ar­legan. Að hans sögn sé vinnu­fram­lag í sam­fé­lag­inu að með­al­tali skert um nærri 30 pró­sent vegna geð­rænna vanda­mála.

„Geð­heil­brigð­is­kerfið er löngu sprungið og við sem sam­fé­lag verðum að finna nýjar lausnir ef ekki á illa að fara,“ segir hann og telur hraða versnun geð­rænnar heilsu gefa til­efni til að skoða hvernig fólk lifir lífi sínu.

Haraldur ræðir einnig ein­mana­leika og félags­lega ein­angrun og segir sam­skipti við annað fólk, hreyf­ingu og úti­veru skipta grund­vall­ar­máli fyrir heilsu. Fólk sem glími við kvíða, þung­lyndi eða kulnun eigi gjarnan til að ein­angra sig þótt félags­leg tengsl geti verið sér­stak­lega mik­il­væg við slíkar aðstæður.

„Við þurfum að vera úti, að hreyfa okkur og hitta fólk. Án þess er heilsan bara ekki í góðu lagi.“

Haraldur segir vest­ræn sam­fé­lög að mörgu leyti hafa fjar­lægst þau atriði sem skapi raun­veru­leg lífs­gæði. Góð tengsl við fjöl­skyldu og vini, nálægð við nátt­úr­una og hæfi­leik­inn til að staldra við hafi vikið fyrir stöð­ugu áreiti og hraða.

Hann telur því tíma­bært að fólk end­ur­meti for­gangs­röðun sína og gefi sér meira rými til að „vera“ í stað þess að vera sífellt á ferð­inni frá einu verk­efni til ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kenn­ingar um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Myndbönd af meintu móðurskipi náðust sama dag og flugumferð stöðvaðist í Bandaríkjunum.
Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Fólk

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Húsið var byggt árið 1975
Fólk

Glúmur er rif­beins­brot­inn

Fólk

Jón Daði verður faðir í þriðja sinn

Fólk

Hjátrúin um föstu­dag­inn þrett­ánda hefur raun­veru­leg áhrif

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Fjórar ástæður fyrir því að þú færð auð­veld­lega mar­bletti