Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Anna Kristjáns fór í óvænta óvissuferð: „Síminn segir að þetta sé rétt leið“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Anna Kristjáns­dóttir fór í óvænta óvissu­ferð á Tenerife.

Gleði­gjafinn og húmor­istinn Anna Kristjáns­dóttir skrifar færslur á hverjum degi um lífið á Tenerife eða Paradís eins og hún kallar hina spænsku eyju. Færslurnar birtir hún á Facebook við fádæma vinsældir.

Í færslu gærdagsins sagði hún frá óvissu­ferð sem sími vinkonu hennar sendi þær í en tilgangurinn var sá að finna fallegt náttborð sem vinkonan var að kaupa í gegnum netið. Þá segir Anna einnig frá skógjöf Gilja­gaurs. Hér er færslan skemmtilega í heild sinni:

„Dagur 1218 – Óvissu­ferð.

Íslensk kona sem býr hér í Los Cristianos, nafn hennar skiptir ekki máli, bað mig um að fara með sér til San Isidro að sækja gull­fallegt gamaldags náttborð (svona antik) sem hún hafði keypt á netinu. Þar sem radd­stýrða leiðsögu­tækið í Mjall­hvíti er fremur flókið ef reynt er að skrá inn stað­setningu, en radd­stýringin er ekki alltaf tilbúin að hlýða á mína fögru rödd, ákváðum við að notast við síma konunnar og sagði hún mér til og við ókum af stað.Þegar við komum að stóra hringtorginu í San Isidro sagði hún mér að fara leið til vesturs sem var eins og leiðin til baka út á hrað­brautina, en reyndar aðra akrein og framhjá leiðinni út á hrað­brautina og við héldum síðan upp brekkurnar.„Ertu alveg viss um að þetta sé rétt leið? Við erum komnar út úr San Isidro.“„Síminn segir að þetta sé rétt leið„“ var svarið, og ég þorði ekki öðru en að hlýða.Við héldum áfram upp brekkurnar í gegnum eitthvert hverfi sem hét Los Cardones og síðan hlykkjótta vegi til austurs í gegnum einhver þorp og síðan áfram upp enn fleiri brekkur uns við vorum komnar út í sveit. Svo komu skipanir um að fara hérna til vinstri og þar með var ég komin út á einhvern troðning sem lá að húsa­þyrpingu eigi allfjarri þar sem troðningurinn endaði.Þetta á að vera hérna sagði konan, ég ætla að ganga í kringum húsið og hún fór úr bílnum að leita seljanda borðsins. Á meðan fann ég annan troðning sem ég taldi mig komast yfir hjálpar­laust, enda er hún Mjallhvít mín fullvaxin. Þegar ég hafði farið þar yfir blasti við mér malbikaður vegur svo að ég fór að efast um gagnsemi leiðsögu­tækis símans hjá vinkonu minni.Á meðan hafði hún fundið seljanda borðsins og við komum borðinu í bílinn. Svo var ekið af stað á ný, en nú á malbiki og komum við fljótlega inn í þéttbýlið í San Isidro.Svo komum við að hringtorgi: „Þú átt að fara hérna til hægri,“ segir konan.Nei, sagði ég, „ég ætla að keyra beint áfram.“Áfram var ekið niður brekkurnar og í gegnum miðbæ San Isidro, framhjá strætis­vagna­stöðinni og síðan inn á hrað­brautina og heim.Ég er ekki í nokkrum vafa um að konan leið­beindi mér samkvæmt sinni bestu vitund, en öllu meiri vafi ríkir um leiðsögu­tæki símans og minnist ég þess er leiðsögu­tækið í henni Mercý minni (gamli Benzinn með tusku­toppinn) ætlaði að senda mig sjóleiðina til Los Cristianos frá Costa del Silencio um árið og hún Mercý mín kunni ekki einu sinni að synda.—–

Giljagaur skildi eftir konfekt­kassa í skónum mínum í nótt. Eins og sjá má af myndinni er hann ekki frá Freyju alías Ölmu leigu­félagi, heldur frá Nóa. Takk Helga og Þóra. Enn og aftur sannast að ég hefi verið góð við hundana í nágrenninu og á alltaf til hunda­nammi í veskinu mínu ef ég skildi rekast á Buddý, Pabló eða Texas el Perró.“

Gjöf „Giljagaurs“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólks landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt