Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja

Síðustu samskipti þeirra voru símleiðis árið 2021

Reykjavík
Reykja­vík Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Reyk­víkingur hefur höfðað mál fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur og krefst þess að sér verði veittur lögskilnaður frá eigin­manni sínum, sem er með óþekkt heimilis­fang erlendis. Stefna í málinu var birt í Lögbirtinga­blaðinu.

Konan krefst þess aðallega að lögskilnaður verði veittur en til vara skilnaðar að borði og sæng. Hún segir ómögulegt að ná sambandi við eiginmann sinn og að tilraunir undan­farinna ára til að finna hann hafi ekki borið árangur.

Samkvæmt stefnunni kynntust hjónin erlendis árið 2017 og gengu í hjónaband sama ár.

Hjónin slitu samvistum árið 2020. Síðustu samskipti þeirra voru símleiðis árið 2021 og hefur konan ekki haft samband við eiginmann sinn síðan. Hún veit ekki hvar hann er niður­kominn. Hjónin eiga hvorki börn né sameiginlegar eignir.

Krafa konunnar um lögskilnað byggist meðal annars á ákvæði hjúskapar­laga sem kveður á um rétt maka til lögskilnaðar þegar samvistum hefur verið slitið í að minnsta kosti eitt ár. Þar sem ekki hefur tekist að afla samþykkis eigin­mannsins telur hún nauðsynlegt að leita til dómstóla.

Málið verður þingfest í Héraðs­dómi Reykja­víkur 29. september.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning