Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ragga nagli biður Katrínu Jak að kafa djúpt eftir samkenndinni: „Skammist ykkar!!!“

Ragga Nagli
Ragga Nagli Mynd: Aðsend

Ragnhildur Þórðar­dóttir, klínískur heilsu­sálfræðingur, segir forsætis­ráðherra Íslands, Katrínu Jakobs­dóttur, formann VG, meðhöndla mannfólk eins og hveiti­sekki.

Ráðherra sýni af sér fordæma­lausa vanvirðingu og harðneskju þegar kemur að brott­vísun flótta­fólks hér á landi.

Ragnhildur, sem flestir þekkja betur undir nafninu Ragga nagli, er virk að tjá sig á samfélags­miðlum um málefni líðandi stundar. Að þessu sinni eru það brott­vísanir flótta­fólks frá Íslandi sem eru henni hugleikið.

Ragga ritar færslu um málið á Facebook:

„Kæra íslenska ríkis­stjórn.

Ég skrifa til þín sem íbúi á Norðurbrú í Kaupmanna­höfn. Póstnúmer 2200. Þar sem flestir innflytjendur per ferkílómetra búa í Danmörku. Síðustu þrettán ár hef ég búið í fjöl­menningar­samfélaginu hér. Í næstu götu er moska. Allt í kringum mig búa múslímskir innflytjendur. Konur með slæður. Menn í kirtlum. Börn með svarta lokka. Hörunds­dökkt fólk. Fólk sem kom hingað í leit að betra lífi og skjóli fyrir hörmungum heima­lands síns.

Ég ætla að lýsa upplifun minni af þessu fólki sem þú vilt meina aðgöngu inn í hin helgu vé íslenskrar landhelgi. Konan sem hljóp á eftir mér með 10 danskar krónur sem ég hafði gleymt í sjálfsala. Múslima­drengurinn sem dinglaði hjá mér með húfuna sem ég hafði misst úti á götu. Hópurinn af erlendu drengjunum sem hjálpuðu okkur að flytja búslóðina. Grænmetis­salinn sem er flótta­maður frá Íran og gefur mér afslátt af því ég brosi svo fallega. Kebabsalinn sem hefur oftar en ekki sagt okkur að koma bara seinna með greiðslu ef kortið hefur verið með vesen, eða vantað örfáar krónum. Slæðu­klædda nágranna­kona mín sem lánaði okkur þvotta­vélina sína eitt sinn þegar við fluttum inn í nýja íbúð, og skítugar spjarirnar hrönnuðust upp.

Uppáhalds maturinn minn er tyrkneskur, persneskur, sómalskur, sýrlenskur.

Ef Danmörk hefði sent alla út á guð og gaddinn á níunda áratugnum, væri ekki dúndrandi partý hjá bragð­laukunum hjá okkur í Danaveldi.

Á meðan þú meðhöndlar fatlaðan mann eins og hveiti­sekk. Með fordæma­lausri vanvirðingu og harðneskju, og sendir til að sofa á hörðum trébekk í almennings­garði í Grikk­landi þá hitti ég reglulega íraskan félaga minn í ræktinni í Kaupmanna­höfn sem fær enn martraðir tuttugu árum eftir að hafa verið pyntaður af Saddams mönnum.

Á meðan þú lést lögreglu sitja fyrir ungum námsfúsum stúlkum af írönsku bergi svo þær myndu ekki óhreinka gangstéttar Reykja­víkur og taka pláss í framhalds­skóla, þá eru atvinnu­auglýsingar sem fylla heilu doðrantana í leit að fólki til starfa.

Þessi þjóð telur aðeins þrjúhundruð og eitthvað þúsund hræður en tekur á móti einni og hálfri miljón ferða­manna á ári. Okkur vantar fleiri vinnandi hendur á dekk. Á meðan þú skellir í lok lok og læs fyrir okkar bágstöddustu bræðrum og systrum í leit að skjóli og vernd fyrir ofsóknum, kúgun, oki og jafnvel dauða, þá er smjattað á snittum í Laugar­dalnum og þessar aðfarir mærðar í ræðum.

Kæra ríkis­stjórn. Það sem mínir hörunds­dökku nágrannar hafa kennt mér er vinalegt viðmót á skala sem ég hef aldrei mætt hjá okkur bleik­nefjuðu. Ég hef tileinkað mér algjört fordóma­leysi þeirra. Að óháð uppruna þá eigum við öll að hjálpa hver öðru og deila gildum okkar sem manneskjur. Ég hef lært að virða aðra útfrá gjörðum og persónu­leika, en ekki uppruna, landi eða trú sem þeir kjósa sér.

Ef þú hefðir fengir að ráða í Danmörku á níunda áratugnum hefði ég aldrei kynnst þessu fólki. Það hefði ekki fengið að stíga fæti á danska grund eða verið vísað úr landi, eins og stór­hættulegir námsmenn og fatlaðir einstaklingar.

Það er þyngra en tárum taki sú útilokunar­stefna í innflytjenda og hælis­leitenda málum sem bæði þessi lönd hafa hinsvegar tekið upp. Tvö lönd sem tróna á toppi lífsgæða á allri jarðar­kringlunni. Tvö lönd sem skora hæst í lífsgæðum. Tvö lönd sem hafa auðlindir og auðmagn, nægilegt pláss og bolmagn til að taka á móti miklu fleiri bágstöddum sem vita ekki hvort, hvaðan eða hvenær næsta máltíð kemur. Á meðan við forréttinda­pésarnir kvörtum yfir að uppáhalds hummusinn sé ekki til i matvöru­búðinni.

Biðjum til Allah, Guðs, Búdda eða Þórs að þið snúið af villu ykkar vegar og grafið djúpt í iður sálarinnar eftir samkennd, samhyggð og samúð með þeim sem allra minnst mega sín.

Skammist ykkar!!!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning