Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Breti setti heimsmet á Leginum: „Ég er ekki enn komin með fulla tilfinningu í fingurna“

David við Löginn.
David við Löginn. Mynd: Twitter

Hinn breski David Haze setti sitt áttunda heimsmet á róðrar­bretti er hann réri eftir Leginum um miðjan október. Reyndi róðurinn mjög á eftir að vindurinn snerist á miðri leið.

Fram kemur í Austur­frétt að David hafi sett sér það markmið að eiga besta tímann á lengsta fljóti eða stöðu­vatni heims fyrir róður á standandi róðra­bretti (e. stand up paddle board). Snéri hann sér að Íslandi eftir að hafa sett sjö slík met á Bretlands­eyjum, þar á meðal á Thames-ánni við Lundúnar­borg.

Hafði David upphaf­lega ætlað að fara á Löginn 16. október en neyddist til að fresta för vegna veðurs. Ferðin var alls ekki án vandkvæða þrátt fyrir heiðan himinn og hægan vind, til að byrja með.

„Ég byrjaði ferðina við Lagar­fljótsbrúna á Egils­stöðum og ætlaði að róa inn eftir því golan stóð að utan. Þegar ég var búinn með um tvo kílómetra varð mér litið á símann minn og sá að kærastan mín hafði ítrekað reynt að hringja. Ég hringdi til baka og hún sagði bílinn fastan í for á bíla­planinu. Ég sneri við til að hjálpa henni. Okkur gekk ekkert að ýta bílnum en eftir nokkur átök varð okkur ljóst að hand­bremsan var á. Þannig bættust fjórir kíló­metrar við,“ segir David í nýjasta tölublaði Austur­gluggans sem er blaðið sem Austur­frétt gefur út.

Lengd leiðarinnar sem David reri, inn að brúnni yfir ysta hluta Jökulsár í Fljótsdal innan við Hall­ormsstað, er 32 kíló­metrar en hana fór hann á fimm og hálfur klukku­tíma.

„Ég náði góðri ferð fyrsta klukku­tímann og fór 6,5 km. Vatnið var stillt og umhverfið fallegt auk þess sem ég hafði smá vind í bakið. Á næstu klukku­stund réri ég 7 km og á þeirri þriðju var ég á góðri leið með að ná 8 km þegar vindurinn snerist mér í mót. Þá varð þetta erfitt. Ég náði að setja undir mig hausinn og taka eitt róðrartak í einu.

Þegar sólin hvarf á bakvið fjöllin varð mér verulega kalt og ég hlaut fyrsta stigs kalsár. Ég á ekki að tapa neinu varanlega en ég er ekki enn komin með fulla tilfinningu í fingurna.“

Fram kemur í Austur­frétt að David hafi þótt verst að hafa verið í kappi við tímann því þá gat ekki stoppað á leiðinni til að taka ljós­myndir. „Útsýnið af vatninu er stórfenglegt því þaðan fæst annað sjónar­horn á fjöllin en af landi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning