Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heldur skrá yfir allt sem er í frysti

Umhverfis­vænn lífsstíll er tónlistar­konunni Hafdísi Bjarna­dóttur hugleikinn.

„Það eru nokkur atriði sem ég geri mjög meðvitað og markvisst til að draga út matarsóun. Það fyrsta er að ég áætla alltaf aðeins of lítið í kvöldmat því ég vil frekar elda aðeins of lítið en bæta það þá frekar upp með eftirmat eða brauði eða einhverju slíku og þannig tryggja að það verði engir afgangar. En stundum geri ég akkúrat öfugt við þetta, elda risa­stóran skammt (sérstak­lega ef ég á eitthvert hráefni sem ég þarf að fara að nota áður en það verður of seint) og ég frysti svo í passlegum skömmtum fyrir fjöl­skylduna.

Til að ég muni eftir að nota allt úr frystinum þá er ég með allt sem í honum er skráð í lista í tölvunni og svo stroka ég viðkomandi hlut út þegar ég tek hann úr frysti. Með þessu móti er ekkert sem dagar uppi í frystinum. Til að skapa pláss fyrir fleira síðar þá passa ég að taka í hverri viku eitthvað úr frystinum og hita það, ég hef meira að segja stundum verið með kerfi þar sem ég skrái í tölvuna hvað á að vera í matinn úr frysti langt fram í tímann.“

„il að ég muni eftir að nota allt úr fryst­inum þá er ég með allt sem í honum er skráð í lista í tölv­unni…“

Hafdís mælir með að fólk noti frystinn á skapandi hátt. „Til dæmis ríf ég hvítlauk, set í krukku. Svo er um að gera að google-a bara hvort það sé sniðugt að frysta hitt og þetta, Netið lumar á ýmsum ráðum. Sömuleiðis er ég dugleg að google-a það hráefni sem ég á mikið af og finn þá sniðugar uppskriftir úr viðkomandi hráefni sem ég get stuðst við,“ útskýrir Hafdís.

Reglulega er hún svo með „afganga­hlaðborð,“ í kvöldmat. „Þá notar maður sköpunar­gleðina til að búa til allskonar sniðugt úr hinu og þessu í ísskápnum. Kveikja á kerti og nota fína stellið og þá lítur þetta út eins og fínasta hlaðborð.“

Annað sem Hafdís kveðst gera er að taka box undir afganga með sér þegar hún borðar úti. Þá skoðar hún vel það sem er til í eldhúsinu áður en hún fer að versla og skipuleggur innkaupin eftir því.

Þess má geta að Hafdís stofnaði Facebook-hópinn Síðasti séns! „Sá hópur hefur reynst mjög vel. Meðlimir hópsins og verslunar­starfsmenn birta þar myndir af vörum sem eru á niður­settu verði vegna stutts líftíma til að við sem reynum að versla slíkar vörur vitum hvar þær er að finna. Stundum er verið að gefa vörur, einmitt þess vegna á ég nokkra skammta af blómkáls- og brokkólí­súpu inni í frysti þar sem Krónan var að gefa útlits­gallað brokkólí fyrir stuttu síðan. Gott fyrir jörðina og frábært fyrir peninga­veskið.“

Sjá einnig: Getum ekki borðað uppáhalds­matinn okkar á hverjum degi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá