Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Lækna-Tómas edrú í eitt ár -Segir áfengi geta verið harður húsbóndi

Tómas Guðbjartsson læknir.
Tómas Guð­bjarts­son læknir.

Skurð­lækn­ir­inn Tóma Guð­bjarts­son, betur þekktur sem Lækna-Tómas hefur verið ár án áfengis.

„Fyrir ári síðan ákvað ég að prófa að hætta alveg að drekka áfengi. Þetta byrj­aði sem veð­mál við frúnna, en fyrir ári voru vin­konur hennar flestar að hefja svo­kall­aðan „Dry January“. Þetta sagði hún mig aldrei geta – og ákvað ég því að taka hana á orð­inu,“ skrifar Tómas.

Hann segir að fljót­lega eftir að hann tók áfengi út, hafi hann farið að sofa betur og tekið eftir auk­inni orku bæði í íþróttum og ekki síður í vinn­unni.

„Ekki veitir af því álagið í vinn­unni hefur verið algjör­lega út úr korti und­an­farin miss­eri – iðu­lega tví- til þrí­skiptar næt­ur­vaktir ofan á fulla dag­vinnu. Við slíkar aðstæður er góður næt­ur­svefn og meiri orka gulls ígildi.“

Áfengi aldrei verið vandamál

Tómas seg­ist aldrei hafa álitið að áfengi væri vanda­mál í sínu lífi, en hann hafi af og til fengið sér rauð­víns­glas eða tvö með góðum mat, þegar hann átti frí.

„Í byrjun árs sá ég hins vegar með eigin augum hversu harður hús­bóndi áfengið getur verið, en þá lutu á stuttum tíma nokkrir nátengdir vinir mínir og ætt­ingjar í lægra haldi fyrir Bakkusi. Í sam­skiptum við hann er því ágætt að hafa á hreinu hver ræður ferð­inni. Þetta á ekki síst við þegar álag er mikið – hvort sem það er í vinnu eða einka­lífi. Vissu­lega getur fylgt því sökn­uður að neita sér um „guða­veigar“, t.d. í veislum – en svei mér þá ef betri svefn og meiri lífs­orka vegi ekki þyngra.“

Sumir vina Tómasar vilja meina að hann sé leið­in­legri alls gáðan, en hann vill meina að það sé mis­skiln­ingur. „Ég hef alltaf verið pínu „þurr“ og mat þeirra iðu­lega gert undir áhrifum áfengis.“

Þá seg­ist Tómas ætla fram­lengja þurra­búð­ina, eins og hann orðar það, inn í árið 2022. „Sjáum svo til hversu lengi það varir.“

Prófessor Pilsner

Á Bíldudal hefur Tómas hlotið við­ur­nefnið Pró­fessor Pilsner, en sam­kvæmt honum hefur sala á óáfengum drykkjum tekið kipp eftir að hann hóf sitt áfeng­is­bind­indi.

Tómas með þvag­flösk­una góðu og pilsner í hönd.

Þá seg­ist Tómas nú bera fram rauð­vín fyrir gesti sína á frekar óhefð­bund­inn hátt.
„Fyrir þá sem koma í heim­sókn í Anda­hvilft bíð ég enn upp á rauð­vín, en úr „not­aðri“ þvag­flösku af LSH. Þetta svín­virkar sem neyslu­stýr­ing og þegar hafa nokkrir af vinum mínum ákveðið að hætta eftir slíka skenk­ingu. Reyndar er hvítvín ekki síður áhrifa­ríkt, eða blanda hvítu og rauðu saman!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027