Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Heiða í Hellvar ósátt við plötugagnrýni David Roach: „Það er súrrealískt að þurfa að skrifa þetta“

Björk Guðmundsdóttir
Björk Guð­munds­dóttir Mynd: Instagram-skjáskot

Útvarps- og tónlistar­konan Ragn­heiður Eiríks­dóttir eða Heiða í Unun/Hellvar eins og hún er oft kölluð er afar ósátt við gagnrýni Davids Roach Gunnars­sonar á nýjustu plötu Bjarkar Guðmunds­dóttur, Fossora.

Ekki er það sú staðreynd að David líki illa við plötu Bjarkar, sem fer fyrir brjóstið á Heiðu, heldur skot hans á aðra gagn­rýnendur sem hann segist gruna að séu ekki einlægir í ást sinni á Björk.

„“Björk fær vissulega alltaf góða dóma, og þegar hún ungar út nýrri plötu þá osmósar mærðin frá Morgun­blaðinu til Pitchfork til New York Times og Yorker. En ég fæ einhvern veginn á tilfinninguna að að þetta sé ekki einlægt, og enginn sem heldur á penna njóti þess í alvörunni að hlusta á þetta, heldur skrifi bara á gamalli sjálf­stýringu um snillinginn Björk.“

Jæja, kæri kollegi, Davíð Roach Gunnarsson. Nú veit ég ekki alveg hvað mér á að finnast um þennan pistil. Ég vinn nú á Rúv með þér, en er einmitt líka ein þeirra sem vinn á Morgun­blaðinu og skrifa þar stundum tónleika­dóma og tónlistar­gagnrýni,“ skrifar Heiða í byrjun færslu sinnar á Facebook.

Og hún heldur áfram:

„Útgangs­punkturinn þinn í þessari grein er að þú fílir ekki nýrri tónlist Bjarkar, gott og vel. Það er alls ekki bannað að fíla ekki tónlist Bjarkar. En að vera að reyna að kasta rýrð á að til sé fólk sem fíli bara mjög vel tónlist Bjarkar, já líka nýjustu plöturnar, er eitthvað agenda sem ég skil ekki alveg. Þú nefnir Biophiliu sem plötuna þar sem allt fór að slakast og slappast í tónlist hennar að þínu mati. Þá plötu hlustaði ég endalaust á þegar hún var ný og ég trúði varla að þarna væri samlandi minn og samtíðar­maður á ferð. Ég ímynda mér að þeir sem halda uppá Brian Eno og séu breskir hugsi á svipuðum nótum þegar ný plata kemur út frá honum. Málið er nefnilega að það þarf ekki að vera hægt að syngja með í viðlögum til að eitthvað sé í alvörunni flott tónlist. Og af hverju í ósköpunum ætti ég sem gagn­rýnandi (og hvað þá gagn­rýnendur New York Times eða Pitchfork) að þykjast fíla eitthvað í einhverri meðvirkni?“

Því næst nefnir Heiða dæmi um hljómsveit sem hún hefur þurft að hlusta á án þess að líka við hana, þrátt á álit flest allra.

„Ég hef alveg þurft að hlusta á tónlist sem ég ætti að fíla, sem margir fíla og sem ríkir hálfgerð sameining um, en ég fíla bara alls ekki. Gott dæmi um slíkt er Metallica, þar til fyrir nokkrum árum þegar Metallica og Lou Reed gerðu plötu og þá elskaði ég hana og byrjaði svo í raun að pæla meira í Metallica í kjölfarið og finnst þeir bara prýði­legir í dag. Ég myndi aldrei segja að Debut og Post séu bestu plötur Bjarkar, en þær eru vissulega góðar og grípandi. En það sem mér finnst um tónlist Bjarkar eða þér, kæri Davíð, finnst um tónlist Bjarkar skiptir bara nákvæmlega engu máli. Björk er það klár að hún bara gerir tónlist eins og hún vill og þarf ekkert lengur að sanna sig eða falla í kramið hjá neinum hvort sem er. Henni er líklega skítsama hvort þú vilt að hún geri poppaðri plötur eða ekki. Það sem mig langar hins vegar að vita er: Hvers vegna trúir þú því ekki að það sé til fólk sem er frábrugðið þér? Heimurinn er svo sannarlega ekkert betri staður ef allir eru eins og fíla það sama.“

Í lokaorðum sínum segir hún það frábært að allir séu ekki með sama tónlistar­smekk og hlær að því að þurfa að skrifa þessa færslu.

„Það er engum greiði gerður með því að sá efasemdar­fræjum um að það sé yfir höfðuð til fólk sem fílar svona „skrýtna“ tónlist í alvörunni. Er það ekki bara einmitt stórkostlegast af öllu stórkost­legu að við séum alls ekki öll eins í heiminum? Ég mun aldrei geta fílað sumar tegundir af óperu, en mér hefur aldrei hugkvæmst að það sé ekki til óperu-unnandi í alvörunni, að fólk sé bara að gera sér upp óperu­áhuga út af snobbi eða meðvirkni. Þessi facebókarfærsla er því einungis smá vörn fyrir mig og aðra gagn­rýnendur sem „fíla Björk í alvörunni“. Hahahhaha, það er súrrealískt að þurfa að skrifa þetta, en mér fannst þetta bara eitthvað svo slöpp rit um einn merkasta og svalasta tónlistar­mann Íslands, að ég varð að svara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning