Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Skotmaðurinn hafnar ákæru um tilraunir til manndrápa – Játaði brot gegn vopnalögum

Skotsár á rúðu Ljósmynd/ Gunnar Gunnarsson.
Skotsár á rúðu Ljósmynd/ Gunnar Gunn­ars­son. Mynd: Gunnar Gunnarsson.

Maðurinn sem ákærður er fyrir tvær tilraunir til manndráps í skot­árásinni á Egils­stöðum í lok ágúst, neitaði þeim ákærulið fyrir rétti í dag en aðal­meðferð í málinu hófst í morgun við Héraðsdóm Austur­lands. Játaði hann þrjá ákæruliði að hluta, af fimm.

Samkvæmt Austur­frétt var maðurinn spurður í réttinum í morgun, hvort afstaða hans til ákæru­liðanna hefði breyst síðan hann lýst afstöðu sinni við þinghald í málinu í byrjun desember. Ákæran er í fimm liðum.

Hafnaði maðurinn fyrsta lið ákærunnar sem snýr að því að hann hafi beint skamm­byssu að unnustu sinni á heimili þeirra í Fellabæ að kvöldi fimmtudagsins 26. ágúst. Þá neitaði hann um leið bótakröfu hennar.

Játaði hann að þeim liðum ákærunnar um húsbrot, eigna­spjöll og vopna­lagabrot er hann ruddist án leyfis inn á heimili barnsföðurs unnustu sinnar í Dalseli á Egils­stöðum, vopnaður tveimur byssum sem hann skaut af inni í húsinu og fyrir utan, á bifreiðar sem lagt var fyrir utan. Neitaði hann að ætlunin hafi verið að að drepa manninn.

Þá var hann aukreitist ákærður fyrir brot gegn barna­verndar­lögum og vopna­lögum fyrir að hafa hótað tveimur piltum sambýlis­parsins fyrr­verandi og beint að þeim hlaðinni hagla­byssu þar sem þeir sátu í sófanum á heimili sínu í Dalseli. Hafnar maðurinn því að hafa haft í hótunum við piltana en sagðist aðspurður ekki rengja það að þeir hafi upplifað ógn af hans hálfu.

Samþykkti maðurinn einka­kröfur mannsins er snéru að bótum vegna tjóns á munum og kröfu piltanna um miska­bætur en tók þó fram að hann teldi fjárhæð miska­bótanna of háa.

Fjórði og næst­síðasti liður ákærunnar varðar tilraun til manndráps, hættubrot og vopna­lagabrot með því að hafa skotið þremur skotum úr hagla­byssu að lögreglu­mönnum sem voru í vari við Toyota Landcruiser bifreið í hlaði hússins. Högl úr byssunni lentu í bílnum og á húsi á móti. Neitaði maðurinn ákæru um tilraun til manndráps og hættubrot en játaði brotum gegn vopna­lögum og vald­stjórninni sem og eigna­spjalla.

Í fimmta og síðasta lið ákærunnar er manninum gert að hafa brotið gegn vald­stjórninni og vopna­lögum með því að hafa gengið út úr húsinu, að lögreglubíl þar sem lögreglu­maður var í vari og ógnað honum. Þeim lið neitar ákærði.

Sá ákærði gaf fyrstur allra skýrslu við upphaf aðal­meðferðarinnar í morgun. Mættu fleiri vitni í kjölfarið en sökum ófærðar á Héraði riðlaðist röðin á vitnunum. Heldur aðal­meðferðin áfram á morgun í Héraðs­dómi Austur­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.
Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur