Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hnífur Hildar ennþá á lofti

Hildur segir stemninguna í Ráðhúsinu engu að síður almennt góða

Hildur Björnsdóttir
Hildur Björns­dóttir Er borg­ar­stjóri Reykja­víkur Mynd: BHJ

Frekari niður­skurður er fram undan hjá Reykja­víkurborg og telur Hildur Björns­dóttir borgar­stjóri mjög líklegt að uppsagnir verði á fleiri sviðum borgarinnar. Engar endanlegar ákvarðanir hafi þó verið teknar en ljóst er að niður­skurðar­hnífur borgar­stjóra er ennþá á lofti.

Þetta kemur fram í viðtali við Hildi á Vísi. Þar segir hún hagræðingarhóp borgarinnar halda áfram störfum og að næstu svið séu nú tekin til skoðunar. Samhliða sé unnið að fjárhags­áætlun Reykja­víkurborgar fyrir næsta ár, sem verður kynnt í byrjun nóvember.

„Við erum auðvitað að skoða tillögur með sviðs­stjórunum okkar að því hvar við getum sparað og dregið saman seglin, þannig að já, það er meira fram undan,“ segir Hildur í samtali við Vísi.

Aðspurð hvort uppsagnir verði á mörgum sviðum svarar hún að það sé „mjög líklegt“. Greiningar­vinna standi þó enn yfir og engar ákvarðanir liggi fyrir. Hagræðing geti einnig falist í því að verkefni verði lögð niður eða rekstur endur­skipulagður með öðrum hætti.

Hildur nefnir jafnframt veikindi starfs­fólks sem eitt af stærri viðfangs­efnum í rekstri borgarinnar. Veikinda­hlutfall sé mjög hátt og segir hún kostnað Reykja­víkurborgar vegna veikinda hafa numið hátt í sjö milljörðum króna á ári. Við því þurfi að bregðast.

Í viðtalinu er Hildur einnig spurð út í andrúms­loftið í Ráðhúsinu í ljósi fyrir­hugaðrar hagræðingar. Hún segist finna til með starfs­fólki enda geti óvissa um störf verið erfið.

„Það er auðvitað ekki notalegt að vita að það sé verið að hræra í pottunum og velta við hverjum steini og auðvitað verður fólk óöruggt með sitt,“ segir Hildur. Markmiðið sé að vinna hratt en vandað og taka ákvarðanir fljótt þegar forsendur þeirra liggi fyrir svo starfs­fólk fái vissu um stöðu sína.

Hildur segir stemninguna í Ráðhúsinu engu að síður almennt góða og að vel hafi verið tekið á móti henni. Starfs­fólk vinni hratt að breytingum og mikið af góðu fólki starfi hjá borginni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum