Nær öll bílastæði við kaffihúsið á Sólheimum eru full þennan góðviðrisdag. Gestir sitja úti og njóta góðra veitinga og veðursins og sumir eru á gangi á þessum gróðursæla stað á Suðurlandi en Sólheimar eru sjálfbært samfélag þar sem rúmlega 100 einstaklingar búa og starfa saman. Eins og segir á heimasíðunni er þar rekin öflug félagsþjónusta þar sem einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn er veitt tækifæri til atvinnu og starfsþjálfunar, búsetu, félags- og menningarstarfs. Það var Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir sem stofnaði Sólheima árið 1930 en hún hafði í nokkur ár stundað nám í Danmörku, Sviss og Þýskalandi meðal annars í uppeldisfræði, barnahjúkrun og rekstri barnaheimila og var fyrsti Íslendingurinn sem lærði umönnun þroskahamlaðra.
Á heimasíðu Sólheima segir meðal annars:
„Sólheimar voru stofnaðir sem barnaheimili, einkum fyrir börn sem bjuggu við erfiðar heimilisaðstæður svo sem foreldramissi eða veikindi foreldra. Einnig voru tekin börn til sumardvalar.“ Haustið 1931 kom fyrsta barnið …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





















Athugasemdir