Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi

„Ég vil ekki búa í landi þar sem konur eru þvingaðar til þess að ganga með slæður.“

Stefán Einar Stefánsson stýrir þættinum Spursmál
Stefán Einar Stef­áns­son stýrir þætt­inum Spursmál Mynd: Skjáskot / mbl.is

Fjölmiðla- og Sjálfstæðis­maðurinn Stefán Einar Stef­ánsson segir íslensk stjórn­völd þurfa að taka mun fastar á málefnum innflytjenda og hælis­leitenda og telur að dæmum um árekstra ólíkra menningar­heima hér á landi hafi fjölgað. Þetta kemur fram í viðtali við Sölva Tryggvason í hlaðvarps­þætti hans.

Stefán gagnrýnir meðal annars starfsemi mosku við Bústaðaveg og heldur því fram að konur séu aðskildar frá körlum við bænahald. Hann lýsir aðstöðunni sem „búri“ og segist hafa undir höndum myndbönd frá samkomum þar sem þetta sjáist.

„Þær biðja ekki með karl­mönnunum, heldur eru settar inn í búr á meðan,“ segir Stefán. Hann telur að viðbrögðin yrðu allt önnur ef sambærileg aðgreining ætti sér stað innan Þjóð­kirkjunnar.

Stefán vísar einnig til nýlegrar heim­sóknar múslima­predikara til Íslands og fullyrðir að viðkomandi hafi talað fyrir því að íslenskt samfélag yrði íslamskt. Þá segir hann predikarann áður hafa sætt gagnrýni fyrir öfga­fullar skoðanir í garð samkyn­hneigðra.

Í viðtalinu nefnir Stefán jafnframt atvik á landsmóti skáta á Akureyri. Þar hafi hópur ungra drengja frá Katar, að hans sögn, sýnt stúlkum óviðeigandi hegðun og áreitni. Hann segir lögreglu og barna­verndar­yfirvöld hafa komið að málinu og hópnum að lokum verið vísað af mótinu.

Stefán telur þessi mál sýna að íslenskt samfélag þurfi að standa fastar vörð um þau gildi sem hér hafi verið byggð upp.

„Ég vil ekki búa í landi þar sem konur eru þvingaðar til þess að ganga með slæður eða landi þar sem ungir drengir telja sér það ekki samboðið að konur kenni þeim í skóla­stofunni,“ segir hann.

ESB ekki málið

Stefán gagnrýnir einnig stefnu ríkis­stjórnarinnar í Evrópu­málum og telur að stjórn­völd ættu frekar að einbeita sér að verðbólgu, vaxta­stigi og ríkis­fjármálum. Hann segir sóun innan opinbera kerfisins mikla og nefnir meðal annars byggingu nýs Land­spítala og leik­skólans Brákar­borgar í því samhengi.

Hann segir að ríkis­stjórnin eigi að leggja áherslu á að ná tökum á ríkis­útgjöldum og efnahags­málum áður en ráðist verði í frekari vegferð í átt að Evrópu­sambandinu.

„Það að fara í þessa Evrópu­sambands­vegferð mun ekki laga þau verkefni sem við stöndum frammi fyrir hér heima,“ segir Stefán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Lúðvík Pétursson féll í sprungu við vinnu í Grindavík í janúar 2024.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto