„Ég er 44 ára og nýkominn út úr skápnum sem transmaður; það eru tveir til þrír mánuðir síðan,“ segir Dagur Þór Aspar sem er búinn að láta breyta nafni sínu. Áður hét hann Fanney Ösp Stefánsdóttir. Hann segir að það sé erfitt að bíða eftir að fá karlhormóna og fara síðan í aðgerðir. Hann vill að þetta verði gert sem fyrst.
Dagur segir að þegar hann var lítill hafi hann oft verið að leika sér með gröfur í sandkassanum og fimm til sex ára hafi hann oft leikið sér að bílum með besta vini sínum. Hann var líka mikið í fótbolta og körfubolta og hann hjólaði mikið. „Ég fann mig aldrei í þessum týpísku stelpuleikjum. Ég held ég hafi átt eina Barbie-dúkku.“
Hann segist hafa verið strákastelpa og að hann hafi oft talað um það þegar hann var lítil stelpa að hann vildi vera strákur. „Ég held …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir