Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Spá því að verðbólgan nái hámarki í 9,5 prósentum í ágúst en lækki aftur

Mynd / samsett
Mynd / sam­sett

Hagsjá Lands­bankans spáir því að verð­bólgan í júlí verði 9,2% og nái hámarki í ágúst, eða 9,5%, áður en hún fari aftur að lækka aftur. Telur hún jafnframt að matur og drykkjar­vara, reiknuð húsaleiga, fatnaður og fargjöld til útlanda séu helstu áhrifa­valdar verð­bólgunnar.

Matarkarfan

Hagfræði­deild Lands­bankans segir væntanlega hækkun á matar og drykkja­vöru vera 0,7% á milli mánaða í júlí. Matar­karfan hefur hækkað töluvert en þó minna en fyrri spár gerðu ráð fyrir, en heldur deildin að að miklar verð­hækkanir erlendis eigi eftir að skila sér hingað heim. Hér á landi finnist vel fyrir eftir­spurnar­þrýstingi sem útskýra megi meðal annars vegna erlendra ferða­manna.

Reiknuð húsaleiga

Vísitala íbúðar­verðs á höfuðborgarsvæðinum hækkaði um 3% milli mánaða í maí. Vísitala markaðs­verðs hækkaði um 3,2%, en Hagstofan notar hana á reiknaðri húsaleigu. Þær breytingar á vöxtum og lántöku sem hafa orðið á síðustu misserum eiga enn eftir að koma fram. Hagsjáin spáir að reiknuð húsaleiga eigi eftir að hækka um 2,1% á milli mánaða í júlí.

Sumarútsölur

Verðbólgu­mælingar í júlí eru öllu jafna litaðar af sumar­útsölum á fatnaði og skóm. Spáir því deilidin að 8% lækkun verði á fötum og skóm en sú lækkun gangi síðan til baka í ágúst og september.

Flugfargjöld

Tals­verðri hækkunar er spáð í flug­fargjöldum vegna eldneytis­kostnaðar og aukinnar eftir­spurnar. Spáir deildin 8,3% hækkunar á milli mánaða í júli.

Væntingaspá

Að lokum er vísað í niður­stöður væntinga­könnunar Seðla­bankans sem framkvæmd var í maí og júní. „Miðgildi væntinga heimila til verðbólgu næstu 12 mánuði hefur hækkað um 4 prósentu­stig á undan­förnu ári og er núna 8%. Miðgildi væntinga stærstu fyrir­tækja hefur hækkað um 2,5 prósentu­stig á síðustu 12 mánuðum og er núna 6%. Þetta gefur ekki góð fyrirheit um hjöðnun verðbólgu, en væntingar fyrir­tækja um háa verðbólgu geta hæglega orðið sjálf­uppfyllandi spádómur, þ.e. ef stjórn­endur fyrir­tækja eiga von á hækkandi verðlagi gætu viðbrögð þeirra einfald­lega verið að hækka eigin verð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Ísraelsher segir þá hafa verið liðsmenn Hamas.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Parið var í hávaðarifildi að sögn lögreglu

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað