Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ketill Hafdal og pabbi hans lentu í sjávarháska á gúmmíbát: „Það var hálftvísýnt á köflum“

Ketill Hafdal Halldórsson
Ketill Hafdal Hall­dórs­son

„Það er reimt á mörgum stöðum hérna upp frá. Það á að vera draugur við Álftavatn, Benni blauti heitir hann. Hann var bóndi sem kom hingað upp eftir í gamla daga með dóttur sinni að veiða og það fór ekki betur en svo að hann drukknaði í vatninu og sagan segir að hann gangi hér enn um og trufli fólk. Ég hef ekki orðið var við hann sjálfur. En ég hef nú orðið var við umgang í skálum þar sem enginn á að vera sem ég hef fundið fyrir en ég hef ekki orðið var við neina illa anda; það hefur enginn verið að trufla mig mikið,“ segir Ketill Hafdal Halldórsson, nemi í iðnaðar­verkfræði við Háskóla Íslands og í sumar skála­vörður í skála Ferða­félags Íslands við Álftavatn.

Búið að stela bílnum?

Ketill segist í rauninn hafa verið alinn upp að hluta til á Fjalla­baki og „út um allt á fjöllum og í óbyggðum. Ég kom fyrst hingað á Fjallabak þegar ég var fjögurra ára en foreldrar mínir voru skála­verðir í Hvanna­gili á vegum Ferða­félags Íslands og ég var þar í nokkur sumur í æsku. Eftir það fórum við á svolítið flakk á Kili og víðar. Svo hef ég lengi verið í Horn­bjargsvita á Vestfjörðum með honum karli föður mínum, Halldóri Hafdal. Við byrjuðum þar 2010 ef ég man rétt og ég hef verið þar öll sumur síðan fyrir utan tvö síðustu sumur sem ég hef verið hér á Fjalla­baki.“

„Pabbi; þú veist að þetta heita Þjófa­dalir.“

Ketill var um átta ára. „Ég var í Þjófa­dölum á Kjalvegi með pabba. Skálinn þar er niðri í dal og þarf að labba að honum. Það var komið rökkur þegar við gengum til baka til að fara í bílinn og fórum upp á hól en við töldum að bíllinn væri þar hinum megin. Það er sagt vera reimt á Kili og Þjófa­dalir er svolítið hræðilegt nafn í huga ungs drengs. Þjófar; það er nú ekki gott. Við sáum hins vegar ekki bílinn þar sem við töldum hann vera. Ég varð svolítið skelkaður og spurði pabba hvar bíllinn væri. Hann sagði við hlytum að hafa gengið upp á rangan hól. Ég var þögull í smástund, horfði svo í augun á pabba og sagði: „Pabbi; þú veist að þetta heita Þjófa­dalir.“ Ég var hálf­skelkaður af því að ég hélt það væri búið að stela bílnum og við værum fastir þarna í óbyggðunum. En svo kom í ljós að við höfðum gengið upp á rangan hól og fundum við svo bílinn.“

Tvísýnt

Feðgarnir voru eitt sumarið í Horn­bjargsvita og veiddu stundum í soðið fyrir ferðamenn sem gistu þar. „Við fórum út á lítilli gúmmí­tuðru, svokallaðri Zodiac. Það var hálfgerð bræla; ekki gott í sjóinn. En það vantaði fisk. Það var nú ekki mikil veiði og við þurftum að leggja net til að ná í einhvern fisk en það gekk ekki neitt. Við vorum svo komnir með nokkra fiska í matinn fyrir hópinn og ákváðum að stíma í land nema hvað að þá fór mótorinn ekki í gang. Við vorum einir þarna úti á ballar­hafi á litlum gúmmíbáti. Það var reynt og reynt. Pabbi er gamall vélstjóri og hann kann á svona græjur og hann fór eitthvað að rífa þetta í sundur en mótorinn vildi ekki fara í gang. Þá voru góð ráð dýr. Nema hvað að við vorum með tvær árar og þá var bara að róa í land. Ég held við höfum verið í um kortér til 20 mínútur að komast út en það tók okkur fjóra til fimm tíma að róa í land. Það var hálf­tvísýnt á köflum þegar við vorum að koma að innsiglingunni þar sem er mikið grjót og brim og vanir menn margir hverjir neita að sigla þarna á gúmmíbáti. En fyrir eitthvert krafta­verk tókst okkur að komast í land og það voru fiskibollur í kvöld­matinn fyrir fólkið.“

Karlinn á bílþakinu

Ketill er spurður um eftir­minnilega reynslu á fjöllum. Hálendinu.

Þeir sögðu bara „emergency“.

„Það er svo margt. Það sem mér dettur í hug er þegar ég var skála­vörður í Hvanngili hérna á Lauga­veginum fyrir tveimur eða þremur árum. Það var spáð svolitlum vindi og var mikið af tjaldbúum hjá mér og fullur skáli. Svo vaknaði ég um miðja nótt við það að talstöðin var alveg að fara að springa; það var alltaf verið að kalla á mig. Ég fór fram með stírurnar í augunum og svaraði og var spurður hvort ég gæti aðstoðað við að taka niður tjöldin. Ég hélt nú ekki; það væri bara fínt veður. En fyrst ég var kominn fram úr þá fór ég í regn­jakkann og kíkti út og þegar ég kom á tjald­stæðið þá sá ég að öll tjöldin voru að hrynja og allir vakandi þar og grátandi fólk hér og þar. Ég fór aftur inn og bað um aðstoð og komu land­verðir frá Álfta­vatni og við fórum að rífa niður tjöld. Við vorum að því fram á morgun sem væri ekki í frásögur færandi nema það að morguninn eftir var ég aftur vakinn eldsnemma en þá var það ferðafólk sem var kalt og blautt og vildi komast heim. Svo komu tveir ferðamenn hlaupandi og var mikið fát á þeim. Þeir sögðu bara „emergency“. Ég spurði hvað væri að og þá kom í ljós að óbreyttur Land Rover var fastur í kolófærri á og maður á toppnum. Það endaði með því að það komu björgunar­sveitir alls staðar að til að kippa honum upp úr eftir margra tíma bið með karlinn á þakinu.“

Í sumar er Ketill, sem er 21 árs, staðar­haldari á Álfta­vatni sem er á Lauga­veginum.

„Ég sé bara um staðinn hér. Starfið er tvíþætt. Maður er annars bara ræstitæknir – bara þrífa, þrífa og þrífa. Svo er það hins vegar að vera til staðar ef eitthvað kemur upp á. Það er ýmislegt sem kemur upp á; í gær var veikur maður á svæðinu sem þurfti að fara í bæinn og komu björgunar­sveitar­bíll til að sækja hann.“

Öllu er bara reddað

Ketill segist ekki hafa eytt sumri í bænum frá því hann man eftir sér.

„Þegar fer að vora og sól að hækka á lofti þá kemur alltaf smáfjalla­spenna í mann og maður þarf að fara að komast upp eftir. Svo enda öll sumur á því að ég segist aldrei koma aftur; þetta sé búið. Þá er ég kominn með alveg upp í kok. En svo kemur maður alltaf aftur.“

Svo fylgir þessu góður félags­skapur og almenn stemmn­ing.

Hvers vegna?

„Þetta bara kallar á mann. Það er eitthvað. Fjöllin kalla. Óbyggðirnar kalla og ég verð að gegna þeim. Ætli það sé ekki bara frelsið og náttúran; það er mikið frelsi hérna upp frá. Það er annar tími. Það er ekkert stress. Hlutirnir bara gerast. Það virkar alltaf. Hvort sem það gerist núna eða eftir 10 mínútur, hálftíma, klukku­tíma eða á morgun eða jafnvel í næstu viku. Öllu er bara reddað. Og það reddast alltaf. Svo fylgir þessu góður félags­skapur og almenn stemmning. “

Hann talar líka um friðinn. Ferska loftið. „Það verður ekki mikið betra.

Ætli maður sé ekki með fallegasta útsýni af skrif­stofu sem fyrir­finnst þegar maður horfir út á vatnið og sér fjalla­sýnina. Maður hugsar stundum með sér að það sé ótrúlegt að maður vinni við þetta; að fá greitt fyrir að vera hérna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Húsið var reist árið 1922
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Maðurinn er grunaður um kynferðisbrot

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið