Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Stefán gagnrýnir hugmyndir um „rannsóknardómstól“ vegna séra Friðriks

„Það er fólk sem telur að Njáll og Gunnar hafi verið hommar… en þeir geta ekki skipað nefnd sem kveður niður kenninguna í eitt skipti fyrir öll.“

Stefán Pálsson
Stefán Pálsson Sagn­fræð­ing­ur­inn hugn­ast ekki hug­myndir Æru­nefnd­ar­innar

Stefán Pálsson sagn­fræðingur gagnrýnir harðlega hugmyndir um að stofna félag eða vettvang til að „hreinsa mannorð“ Séra Friðrik Friðriksson og segir slíkt byggja á grundvallar­misskilningi á eðli sagnfræði og sögu­túlkunar. Tilefnið er nýr félags­skapur sem vill vinna gegn þeirri ímynd sem skapast hefur í kjölfar ævisögu um séra Friðrik þar sem dregnar voru fram vísbendingar um mögulega barna­girnd.

Í færslu sinni bendir Stefán á að ómögulegt sé að fá endanlega niður­stöðu í slíkum málum, enda sé viðkomandi löngu látinn og engin dóms­niðurstaða liggi fyrir. „Augljós­lega getur enginn lengur skorið úr um það hvort séra Friðrik braut gegn ungum drengjum, hvort hann var bara með kenndir sem hann túlkaði á óheppilegan hátt eða hvort allt málið sé tilbúningur og oftúlkanir. En forsenda þessa nýja félags­skapar virðist vera furðu­legur misskilningur á eðli sagnfræði og þess hvernig við skynjum söguna.“

Stefán undir­strikar að séra Friðrik hafi hvorki verið sakfelldur né verði nokkru sinni sýknaður, einfald­lega vegna þess að slíkt ferli sé ekki lengur mögulegt. „Séra Friðrik hefur ekki verið sakfelldur fyrir neitt og verður því ekki sýknaður af neinu heldur. Sagn­fræðingur skrifaði ævisögu guðs­mannsins og dró fram atriði sem honum fannst benda til barna­girndar – og fjöldi fólks lét sann­færast af þeim rökstuðningi.“

Hann segir að sú túlkun geti verið rétt eða röng, en henni verði ekki eytt með formlegum hætti. „Sú túlkun er kannski rétt og kannski röng, en hún verður ekki upprætt eða ógilt með því að setja rannsóknar­dómstól, eins og hér virðist kallað eftir.“

Til að skýra sjónarmið sitt dregur Stefán upp fleiri dæmi úr íslenskri sögu þar sem kenningar hafa fest sig í sessi, óháð því hvort þær standist fræðilega skoðun. „Það er fólk sem telur að Njáll og Gunnar hafi verið hommar… en þeir geta ekki skipað nefnd sem kveður niður kenninguna í eitt skipti fyrir öll.“ Hann nefnir einnig hugmyndir um heilsufar Jóns Sigurðs­sonar og sögu­sagnir um Brynjólf biskup sem hafi lifað góðu lífi í almennri vitund þrátt fyrir veikan grundvöll.

„Eins hafa margir það fyrir satt að Jón Sigurðsson hafi þjáðst af sýfillis stóran hluta ævinnar. Og Megas hefur náð að planta því hjá hálfri þjóðinni að Brynjólfur biskup hafi getið barnið með Ragnheiði dóttur sinni, þrátt fyrir að hafa ekkert fyrir sér í því. - Allt er þetta frekar ergilegt fyrir aðdáendur fyrr­nefndra persóna úr Íslands­sögunni.“

Stefán segist skilja tilfinningar þeirra sem standa að félaginu Æruvernd, sem vill verja orðstír séra Friðriks, en segir að raunhæfar leiðir séu aðrar. „Ég get alveg haft smá skilning á frústrasjónum stofnenda félagsins Æruverndar sem sárnar að þeirra maður hafi bókstaf­lega verið felldur af stalli, en í raun geta þeir ekkert annað gert en að reyna að fá nýjan sagn­fræðing til að skrifa nýja ævisögu séra Friðriks og vona að hún verði enn betri, nái enn meiri útbreiðslu og komist að öðrum niður­stöðum…“

Að mati Stefáns er það eina leiðin sem samræmist vinnu­brögðum sagn­fræðinnar, að takast á um túlkanir með nýjum rann­sóknum, en ekki með tilraunum til að úrskurða fortíðina endanlega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Lúðvík Pétursson féll í sprungu við vinnu í Grindavík í janúar 2024.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto