Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Gistiheimili lætur fúkyrðin dynja á Rakel: „Ég þarf bara að skoða þetta“

Rakel Garðars­dóttir, fram­leiðandi hjá leik­hópnum Vestur­port og stofnandi og framkvæmda­stýra samtak­anna Vakandi, lenti í ansi undarlegum orða­skiptum við, að því er virðist, forsvars­menn gistiheimilis á Tálkna­firði, undir færslu sem hún birti á Facebook.

Færslan Rakelar snerist um laxeldi, en hún deildi frétt þar sem finnskur leikari lýsti yfir furðu sinni á heimildum til laxeldis hér á landi. „En það er alveg ó­skiljan­legt að ís­lenskir stjórn­mála­menn hafi opnað dyrnar fyrir norskum milljarða­mæringum og leyft þeim að koma og eyði­leggja firðina ykkar, vist­kerfið, ó­spillta náttúru og ó­spilltan laxa­stofn. Ég meina, það er svo ó­trú­legt að ég get ekki varist því að velta því fyrir mér hver sé að hagnast á þessu og hvort hér sé á ferð spilling. Því að á meðan svo rosa­lega strangar reglur eru í gildi á Ís­landi til að vernda hinar ýmsu tegundir þá eru allt í einu engar reglur til að vernda laxinn fyrir þessum erfða­breytta eldis­stofni,“ sagði hinn finnski Jasper Pääkkönen í samtali við Vísi, en hann var staddur hér á landi að vinna við gerð heimildar­myndar um Norður-Atlantshafs­laxinn og þær hættur sem steðja að tegundinni.

Facebook-síða undir nafninu Gistiheimilið Bjarma­land skrifaði athugasemd við færslu Rakelar:

„Fólk á Vestfjörðum þarf líka atvinnu og uppbyggingu íslenskt fyritæki keypti 38.9 % hlut í ArticFich alltaf jafn furðulegt hvernig fólk úr 101 Reykjavík hugsar – þessi Finnski stór­leikari væri með adra hugsun ef hann hefði alist upp á bóndabæ í Arnar­firði á Vestfjörðum.“

Rakel svarar gistiheimilinu og skrifar að það hljóti að mega skapa atvinnu án þess að það komi niður á lífríki jarðar.

„Þessi starfsemi skapar sárafá störf & skilar í ofanálag ósköp litlu til samfélagsins. Borga enga skatta. Sýnist ljóst að þarna er meiri hagsmunum fórnað fyrir miklu minni. Kveðja úr Dýrafirði,“ skrifar Borgar í svari við athugasemd gistiheimilisins. Fleiri svara á svipuðum nótum.

Sá sem sér um Facebook-aðgang Gistiheimilisins Bjarma­lands skrifar þá aðra athugasemd, ívið harkalegri:

„Ég held ad Rakel Garðars­dóttir ætti að gæta syn hvern hún er að drulla yfir – Jón Ívar Halldórsson faðir gogglaðu þad googlaðu svo Afa þinn sem stofnaði nauðgunar­heimilið Breiðuvik. Þar sem drengjum var misþyrmt flottur afi þinn. Merkilegt þetta 101 pakk sem hefur aldrei mýgid í saltan sjó.“

Gistiheimilið lætur ekki þar við sitja og skrifar aðra athugasemd:

„Rakel Garðars­dóttir og vestur­port ætti ad líta í eigin barm áður enn þad ber lygasögu a borð fyrir Íslendinga Eg er dóttir Jóns Ívars Halldórsson skip­stjóra þid eruð hálvitar Rakel Garðars­dóttir Punktur.“

Eftir þessar athuga­semdir virðist fólki vera nóg um og fara sumir að velta fyrir sér undarlega fráhrindandi markaðs­setningu fyrir­tækisins.

„Ekki vildi ég gista á þessu orðljóta gistiheimili,“ segir Sonja til að mynda, og Guðrún skrifar:

„Ekki mun ég heldur gera það – ummæli þessar vesanlings manneskju á Bjarma­landi sýna að hún gengur ekki heil til skógar – og að reyna að sverta mannorð fólks sökum þess hvað afi þess gerði !!!!“

Rakel leggur þá sjálf orð í belg og svarar orðum þess sem skrifar fyrir tálknfirska gistiheimilið:

„Ég þekki ekki til þess afa… þú hlýtur að fara manna­villt.“

„Frábær markaðs­setning hjá þér… Spurning um að nota eigin prófíl frekar til að básúna dónaskap þinn og vanstillingu á netinu í gegnum fyrir­tækið þitt. Þú ert sjálfri þér og Tálknfirðingum til skammar,“ skrifar Ársæll.

Rakel skrifaði síðan aðra færslu þar sem hún birti skjáskot af athuga­semdum gistiheimilsins.

„Get ekki annað en varað ykkur vini mína við að gista á þessu orðljóta gistihúsi…. skil ekki hvað er málið – en gvuð forði okkur frá því. ps. kom útaf umræðu um finnskan leikara og sjóeldi…. hver þessi Jón er og hver þessi afi minn veit ég ekkert um … svo bý ég í 105 svo e-jar stað­reyndir komi fram,“ skrifar Rakel.

Telur eiginkonu sína hafa skrifað athugasemdirnar

Líkt og áður sagði er gistiheimilið staðsett á Tálkna­firði. Skráður stjórnar­formaður þess er Gísli Matthíasson. Mannlíf reyndi ítrekað að ná í gistiheimilið við vinnslu fréttarinnar, án árangurs. Blaða­maður náði hins vegar sambandi við Gísla og spurði hann út í ummælin, skrifuð í nafni fyrir­tækisins.

Í fyrstu kannaðist Gísli ekki við athuga­semdir sem skrifaðar hefðu verið í nafni Gistiheimilisins Bjarma­lands. Hann kannaðist ekki heldur við Rakel.

Þegar blaða­maður útskýrði málið nánar sagði hann: „Ég hef eitthvað heyrt en ég er ekki búinn að sjá þetta og veit ekkert um þetta.“

Blaða­maður spurði þá hver væri með Facebook-aðgang gistiheimilisins.

„Það er konan mín sem er með það.“

Þannig að hún skrifar þessar athuga­semdir?

„Já, það held ég að hljóti að vera.“

Gísli sagðist ekki hafa rætt málið við konuna sína og gat ekki gefið blaða­manni samband við hana.

„Ég þarf bara að skoða þetta. Ég vil ekki segja neitt um þetta, ekki nokkurn skapaðan hlut,“ sagði Gísli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá