Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Segja sumar ásakanirnar í MH uppspuna: „Nafnritunin fór í mikla dreifingu innan og utan skólans““

Leitað verður á böllum Menntaskólans við Hamrahlíð með málmleitartæki eins og öllum öðrum skólum á höfuðborgarsvæðinu – Myndin tengist fréttinni ekki beint
Leitað verður á böllum Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð með málm­leit­ar­tæki eins og öllum öðrum skólum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Ráðgjafa­hópur sem rann­sakaði nafnbirtinu meintra kynferðis­ofbeldis­manna á speglum MH hefur komist að niður­stöðu. Segir hann hluta ásakana lygi.

Í byrjun október á þessu ári var sagt frá skila­boðum sem birtust á salernirspeglum Mennta­skólans við Hamrahlíð og á blaði sem hengt var upp á vegg skólans þar sem nöfn nokkurra drengja sem stunduðu nám við skólans voru skrifuð og þeir tengdir við kynferðis­brot. Þar stóð meðal annars „Ég vil ekki fokkings nauðgara í skólanum mínum.“ Þá var á öðrum stað drengur sakaður um að hafa nauðgað litlu frænku sinni.

Sjá einnig: „Ætla ekki að vera í sama skóla og strákur sem er kærður um að hafa nauðgað litlu frænku sinni“

Stjórn MH réði til sín ráðgjafahóp sem fara átti í saumarnar á málinu og ásakanirnar. Niður­staða þessa hóps er nú komin fram.

Á heimasíðu MH birtist í morgun færsla þar sem farið er yfir niður­stöðu ráðgjafa­hópsins. Þar segir meðal annars: „Meðferð málanna hjá ráðgjafa­hópnum er nú lokið eða á loka­metrunum. Við ítarlega skoðun hjá ráðgjafa­hópnum komu í sumum tilvikum engar skýringar eða upplýsingar fram um ástæðu þess að nöfn nemenda voru rituð á speglana eða þau með öðrum hætti tengd umfjölluninni. Í þeim tilvikum bárust heldur engar kvartanir yfir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi viðkomandi nemenda. Sem dæmi má nefna að sú saga að í skólanum sé tiltekinn nemandi sem hafi nauðgað litlu frænku sinni, hefur ekki fengið neina stoð þrátt fyrir ítarlega könnun ráðgjafa­hópsins. Fór sú saga fyrst á flug þegar nemandinn stundaði nám í öðrum skóla og endurtók sig í MH.“

Kemur fram á heimasíðu skólans að niður­staða hópsins í þeim málum sem tilkynnt voru sé sú að nemendur hafi orðið fyrir einelti og útilokun eftir að nöfn þeirra birtust í tengslum við meint kynferðis­brot.

„Niður­staða ráðgjafa­hópsins í þeim málum sem tilkynnt voru var sú að nemendur hafi orðið fyrir einelti og útilokun við það að nöfn komu fram með áður­greindum hætti eða nöfn þeirra tengd umfjölluninni. Nafn­ritunin fór í mikla dreifingu innan og utan skólans.“

Í lokaorðum sínum ítrekar skólinn að hann standi með öllum þolendum ofbeldis og eineltis.

„MH ítrekar að í kjölfar þessara mála samþykkti skólinn að verða fyrstur til að innleiða nýjar áætlanir, í samvinnu við Samband íslenskra framhalds­skólanema, sem snerta hvoru tveggja kynferðis­lega áreitni og ofbeldi sem og einelti. Stendur sú vinna yfir. Eru nemendur hvattir til að nýta þá ferla sem til staðar eru og tilkynna um mál ef upp koma innan skólans, þ.e. með því að leita til starfs­fólks MH eða tilkynna í gegnum tilkynninga­hnapp á heimasíðu skólans. Skólinn ítrekar að hann stendur með öllum þolendum ofbeldis og eineltis, sama af hvaða toga slík mál kunna að vera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis