Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Áttaði sig ekki á því að hægt væri að starfa sem fatahönnuður

Signý Þór­halls­dóttir, fata- og prent­hönn­uður, vinnur nú að eigin merki og seg­ist sækja inn­blástur í íslenska nátt­úru.

Hvernig hönn­uður eða lista­maður ert þú?
„Ég er fata­hönn­uður sem vinnur mikið með prent­aðan textíl.“

Signý vinnur mikið með prent­aðan textíl.

Hvernig verk gerir þú aðal­lega og fyrir hvað?
„Hvað prentin varðar þá teikna ég þau aðal­lega fyrir fatnað. Ég er núna að vinna í mínu eigin merki, en það heitir Morra.“

Hvaða litir heilla þig?
„Ég er mjög mikið fyrir heita liti og dregst alltaf að app­el­sínu­gulum tónum. Mest er ég þó hrifin af óvæntum lita­sam­setn­ingum.“

„Ég var alltaf að teikna og sauma sem krakki og ung­lingur en átt­aði mig ekki á því að hægt væri að starfa sem fata­hönn­uður fyrr en í mennta­skóla.“

Hvaðan færðu inn­blástur?
„Ég flutti nýlega heim til Íslands aftur eftir nær sjö ár erlendis. Upp á síðkastið hef ég því fengið mik­inn inn­blástur frá íslenskri nátt­úru sem ég var farin að sakna mikið. Þar fyrir utan hafa söfn og gall­erí alltaf verið þeir staðir sem örva mig mest í átt að sköp­un­ar­gleð­inni.“

Ákvaðst þú á ein­hverjum tíma­punkti að verða hönn­uður eða gerð­ist það bara „óvart“?
„Ég var alltaf að teikna og sauma sem krakki og ung­lingur en átt­aði mig ekki á því að hægt væri að starfa sem fata­hönn­uður fyrr en í mennta­skóla. Þá kom eig­in­lega ekk­ert annað til greina.“

Hefur þú alla tíð haft gaman af því að teikna?
„Já, mér hefur alltaf þótt það gaman þótt það hafi auð­vitað komið hæðir og lægðir.“

Hvenær sól­ar­hrings­ins finnst þér best að vinna?
„Mér finnst alltaf best að vinna í dags­birtu.“

Vinnu­að­staða Signýjar.

Hvaða hönn­uðir og lista­menn eru í upp­á­haldi hjá þér?
„Það er erfitt að nefna sér­staka hönn­uði, en ég fylgist þó til dæmis alltaf vel með Dries van Noten og auð­vitað Vivienne Westwood en ég vann þar í nokkur ár. Ég hef líka verið spennt fyrir ungum fata­hönn­uði sem heitir Matty Bovan. Upp á síðkastið hef ég mikið skoðað lista­menn eins og Louise Bourgeois, Barböru Hepworth, Gerði Helga­dóttur, Evu Hesse og Anselm Kiefer.“

Hvað er fram undan á næstu miss­erum?
„Ætlunin er að halda áfram að þróa vöru­merkið Morra frekar.“

Mynd / Hallur Karlsson

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni