Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Fyrsta æta afurðin í íslenskri náttúru

Rabar­bari er senni­lega fyrsta æta afurðin í íslenskri nátt­úru sem kemur upp á vorin, en hann lætur kræla á sér mun fyrr á Norð­ur­löndum og í Englandi, eða í byrjun febr­úar. Þvert á það sem margir halda er hann græn­meti en ekki ávöxtur. Rabar­bari er upp­runn­inn í Asíu, nánar til­tekið í Mongólíu, Himalaja-fjöllum og Síberíu, enda þolir hann vel frost.

Æti hlut­inn af rabar­bara er stilk­ur­inn og rótin (per­urnar). Rabar­bara­blöðin inni­halda eitruð efni og því má alls ekki borða þau. Stundum hefur verið sagt að rabar­bar­inn sé óhollur vegna oxal­sýrunnar sem í honum er og þá sér­stak­lega að hann sé slæmur fyrir nýrun. Fyrir heil­brigða ein­stak­linga er í góðu lagi að neyta rabar­bar­ans, það er ein­ungis slæmt fyrir þá sem hafa ákveðna teg­und af nýrna­steinum. Rabar­bari er afar trefj­a­ríkur og skýrir það hvers vegna hann hefur verið not­aður sem melt­ing­ar­lyf í gegnum ald­irnar. Hann er hita­ein­inga­lít­ill, sér­lega C-vítamín­ríkur og inni­heldur tals­vert magn stein­efna eins og kalín, fos­fór, magnesíum og kals­íum.

Góður sem drykkur

Rabar­bara er hægt að geyma í ísskáp í 2-3 daga en hann verður nokkuð fljótt linur. Hann má auð­veld­lega frysta og þá er best að þvo hann og þerra og skera svo í litla bita. Litur hans er ýmist grænn og rauður eða hárauður en síð­ast­nefndi lit­ur­inn er oft­ast á svoköll­uðum vín­ra­bar­bara sem er fín­gerð­ari og mild­ari. Ef grænn rabar­bari er not­aður gæti verið gott að nota nokkra dropa af rauðrófusafa í rétt­ina til að þeir verði rauð­ari. Gott er að mýkja rabar­bara áður en hann er not­aður í bakstur, ann­að­hvort með því að láta hann mar­iner­ast í skál með sykri í 20-30 mín. eða sjóða í stutta stund með smá­vegis sykri og örlitlu vatni.

Hollur fyrir okkur

Rabar­bari trénar þegar hann er orð­inn of stór og þess vegna er best að neyta hans þegar hann er fremur lít­ill. Ef hann er allur tek­inn upp í byrjun sum­ars vex hann aftur. Á góðu sumri er hægt að ná jafn­vel þremur upp­skerum. Stóran rabar­bara getur verið gott að skræla áður en hann er not­aður.

Rabar­bari hefur mest verið not­aður í sultur, grauta, súpur, búð­inga, kökur og í seinni tíð hefur hann verið not­aður í krydd­mauk t.d. með fiski og kjöti. Hægt er að búa til úr honum rabar­bara­vín og svo má nota hann út á hafra­graut og með jógúrt eða bara dýfa stöngl­unum í sykur eins og margir muna eflaust eftir að hafa gert í æsku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni