Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar

Til þyngingar var horft til þess að brotin voru kerfis­bundin

Íslenskir seðlar
Íslenskir seðlar Mynd: Shutterstock

Sjúkra­þjálfarinn Eiríkur Bergmann Henn hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðs­bundið fangelsi fyrir fjársvik gegn Sjúkra­tryggingum Íslands (SÍ). Héraðs­dómur Reykja­víkur kvað upp dóminn 22. september.

Eiríkur var sakfelldur fyrir að hafa á tíma­bilinu frá 22. mars til 26. september 2023 blekkt starfs­fólk SÍ í 577 skipti til að samþykkja greiðslu­kröfur að fjárhæð samtals tæplega 3,8 milljónir króna.

Samkvæmt ákæru rangfærði Eiríkur upplýsingar á reikningum, meðal annars dagsetningar meðferða og gjalda­liði. Þá voru einnig gerðar kröfur vegna meðferða sem ekki fóru fram.

Málið hófst þegar eftirlits­deild SÍ fékk ábendingu um óvenjumargar komur hjá Eiríki miðað við fjölda sjúklinga hans. Eftirlitsmál var opnað í september 2023 og óskað eftir gögnum um tíma­bókanir og meðferðir.

Eiríkur óskaði í kjölfarið eftir að 577 reikningar yrðu bakfærðir. SÍ komst síðar að þeirri niður­stöðu að alls 854 reikningar væru tilhæfu­lausir og krafði hann um tæplega sex milljóna króna endur­greiðslu. Eiríkur greiddi þá fjárhæð í desember 2023.

Við rannsókn héraðs­saksóknara var ákærða hins vegar gefið að sök að hafa framið fjársvik vegna 577 reikninga og ofgreiðslna upp á 3,8 milljónir króna. Eiríkur hélt því fram að megin­hluti meðferð­anna hefði í raun farið fram áður en samningur hans við SÍ tók gildi og að hann hefði rangfært dagsetningar þeirra. Hann neitaði að hafa haft ásetning til að svíkja út fé.

Dómurinn féllst ekki á þær skýringar. Taldi hann háttsemi Eiríks bera ótvíræð merki þess að hann hefði ætlað að blekkja starfs­menn SÍ til að greiða fyrir meðferðir sem stofnuninni bar ekki að greiða. Var talið sannað yfir skyn­samlegan vafa að hann hefði brotið af sér í auðgunar­skyni.

Eiríkur hafði áður verið sviptur starfs­leyfi sínu sem sjúkra­þjálfari af landlækni. Dómurinn hafnaði þeirri kröfu hans að saka­málinu yrði vísað frá vegna banns við endur­tekinni máls­meðferð og refsingu. Starfs­leyfis­sviptingin teldist ekki refsikennd viðurlög heldur stjórnsýslu­úrræði sem ætlað væri að tryggja gæði heilbrigðis­þjónustu og öryggi sjúklinga.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að Eiríkur hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, endur­greitt féð og leitast við að upplýsa málið. Til þyngingar var horft til þess að brotin voru kerfis­bundin og að hann hefði svikið fé úr ríkis­sjóði í starfi sínu.

Eiríkur var dæmdur í sex mánaða fangelsi, en fullnustu refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennt skilorð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning