Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Kettir drepnir í dýragildrum á lóð Snarfara: „Ég á ekki til orð hvað þetta er mikil mannvonska“

Fyrrum stjórnar­maður hjá siglingakúbbnum Snarfara er gefið að sök að hafa komið fyrir dýra­gildrum á lóð klúbbsins með þeim afleiðingum að þar hafa kettir drepist. Í yfir­lýsingu frá Snarfara er viðurkennt að undan­farin ár hafi kettir veiðst í gildrinar en að þær hafi verið settar upp til að veiða minka og að það hafi verið gert án samþykkis stjórnar.

„Það er því þyngra en tárum taki, að sú ömurlega staða hafi komið upp, að saklausir kettir hafi látist í minka­gildrum sem komið hafði verið fyrir á svæði félagsins,“ segir meðal annars í tiliynningunni sem félagið birti á Facebook-síðu sinni.

Snarfari er rótgróinn siglinga­klúbbur í Reykjavík fyrir skemmti- og sportbáta­eigendur. Alls eru tæplega 400 félags­menn og um 140 bátar skráðir í Snarfara. Aðalsvæði Snarfara er í Nausta­vogi. Þar er félags­heimili, þrjár bryggjur ásamt þjónustu­bryggju, rampur og þvotta­aðstaða, viðgerðar­skemma og stórt landsvæði fyrir bátastæði á landi svo fátt eitt sé nefnt.

Siglinga­klúbburinn hafnar því hins vegar að gildrurnar hafi verið settar upp með vitund félagsins. „Gildrur þessar eru ekki og hafa ekki verið á vegum Snarfara. Stjórn Snarfara er ekki kunnugt um að neinar gildrur séu á svæði félagsins, hvorki minkagidrur né aðrar til veiða á dýrum, enda algerlega óheimilt. Stjórnin harmar þessi atvik og vill fullvissa alla hlut­aðeigandi um, að hún mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að svona gerist ekki aftur,“ segir stjórn Snarfara.

Á síðu Snarfara logar allt vegna málsins og eru langflestir þeirra sem tjá sig undir færslunni þeirrar skoðunar að tilkynning stjórnarinnar sé aðeins yfirklór. Sanda Ósk er ein þeirra. „Hvernig má það vera að enginn á vegum félagsins hafi tekið eftir þessum gildrum á YKKAR svæði? Þið eruð með mynda­vélar að vakta svæðið allan sólarhringin. Ég á ekki til orð hvað þetta er mikil mann­vonska,“ segir Sandra. Og Sandra Karen er sammála. „Eru þið búin að rannsaka þetta eitthvað nánar?? Hvað voru gildrurnar lengi þarna og hversu margir kettir hafa drepist og hvar eru hræin?,“ spyr hún.

Diðrik gefur líka lítið fyrir yfir­lýsingu stjórnar Snarfara. „Ég held að þeir haldi að við séum heimsk. Það væri flott næsta skref að fá að vita hvað gildrurnar voru uppi í mörg ár, hvað þetta eru margir kettir yfir árin og hvað var gert við hræin,“ segir Diðrik. Undir þetta tekur Stefán. „Og fólk á að trúa því að þið hafið aldrei vitað neitt? Einmitt.“

Og Sunna vill aðgerðir hið fyrsta. „Hefur þessi mađur veriđ rekinn úr félaginu? Eru minkar vandamál á svæđinu? Ef ekki finnst mér klárt mál gildran var sett til ađ veiđa ketti. Hvađ var gert viđ alla kettina sem hafa lent í gildrunni?,“ spyr Sunna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning