Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Þóra Þórisdóttir forðast matarsóun: Gefðu tannlæknatíma í jólagjöf

Neytandi vikunnar heitir Þóra Þóris­dóttir og er fædd á Vestfjörðum, alin upp á Ströndum og hef búið mestan hluta ævinnar í Reykjavík og Hafnar­firði. Hún er gift og á 4 uppkomin börn og 5 barnabörn. Hún er menntuð í myndlist og listfræði og nýtir sér það í nýsköpunar­starfi í matvæla­fyrirtækinu sínu Urta Islandica ehf. Þóra rekur núna tilrauna matvöru­verslun sem er algerlega plastlaus en það er Matar­búðin Nándin á Austur­götu í Hafnar­firði og Básvegi í Keflavík. 

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég kaupi eingöngu inn í Matar­búðinni Nándinni þar sem ég vinn. Ég spara mikið með því að nýta mér að kaupa vörur sem eru komnar á dagsetningu á niður­settu verði. Einnig er mikill sparnaður í því að vöru­úrvalið er einfalt, pakkningarnar miðast oftast við tvo og maturinn geymist miklu betur í endurlokanlegu gler­umbúðunum. Nú er nánast engin matarsóun á heimilinu.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég reyni að fara vel með, gera við og endurnýta. Þó ég vilji alls ekki endurnýta plast undir matvæli þá endurnýti ég alla blóma­potta sem koma undan krydd­jurtum. Þvæ þá, stafla saman og nota þegar ég tek skorpu í að rækta sjálf. Vildi samt óska að hægt væri að fá krydd­jurtir án plast­potta.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég hef í huga að versla í nærumhverfi, velja stað­bundin matvæli og lífrænt þegar hægt er.  Mest er ég upptekin að þvi að forðast plast í matvælum og textíl, bæði af umhverfis­ástæðum en ekki síður heilsufars­ástæðum. Geri þó undan­tekningu þegar ég kaupi dót fyriri barna­börnin því það er erfitt að finna plast­laust í þeirri deild.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Græjum í eldhúsið, ryksugum og alla vega moltu­gerðar­tækjum.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já, mjög svo

Annað sem þú vilt taka fram?

Mér er sérstak­lega umhugsað um þá pólitísku og samfélags­legu strúktúra sem þurfa að breytast í samfélaginu til að auðvelda okkur neytendum að vera umhverfis­lega ábyrg. Ég myndi vilja sjá samevrópskt hringrásar­kerfi í gler­umbúðum og er að reyna að leggja mitt til málanna á því sviði með því að þróa ferla í þá veru.

Afmælis­gjafa­hugmynd fyrir uppkomin börn sem eru kannski enn í skóla og eiga ekki mikinn pening: Tannlækna­tími.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum