Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Vatican Girl – Hið dularfulla hvarf Emanuelu Orlando

Eitt af því áhuga­verðasta á Netflix nú um mundir, að mínu mati, eru heimildar­þættirnir Vatican Girl – The Disappearance of Emanuela Orlandi. Hin 15 ára Emanuela hvarf sporlaust í Vatikan-borg á brennandi heitum sumardegi, 22. júní árið 1983, eftir að hafa sótt flautu­tíma. Hefur fjöl­skylda hennar leitað hennar stíft síðan.

Þættirnir og þetta dular­fulla mál hefur allt og mætti helst líkja við skáldsögu eftir Dan Brown. Það sem sveipar málið enn dular­fyllri blæ en gengur og gerist í svipuðum málum er sú staðreynd að stelpunni var rænt innan veggja Vatikansins en faðir hennar vann þar og fjöl­skyldan bjó þar öll. Þættirnir eru afar vel gerðir, útlitið, meðferðin á efninu, viðtölin og heildar­myndin, til fyrir­myndar.

Þættirnir eru fjórir talsins og hver þáttur skilur mann eftir á barmi hengi­flugs, eins og góðir heimildar­þættir eiga að gera, maður á að vilja meira. Fjöldi viðmælanda er mikill en í forgrunni er bróðir Emanuelu, Pietro Orlandi sem hefur hvað harðast leitað að systur sinni en þar má einnig sjá blaða­manninn Andrea Purgatori, lögfræðinga, lögreglu­stjóra og fleiri sem komu að rannsókn málsins.

Skoðaðar eru nokkrar kenningar um hvarf Emanuelu og gæti hver þeirra verið mjög góð skáldsaga. Kenningarnar snúast meðal annars um tengsl mann­ránsins við hryðjuverka­samtök, ítölsku mafíuna, morð­tilræðið á Jóhannesi Páli páfa árið 1981, háttsettann prest í Vatikaninu og fleira í þeim dúr en það sem þær eiga allar sameiginlegt er sú staðreynd að þær benda allar til þess að Vatikanið viti meira en gefið hefur verið upp. Meira að segja virðist Francis páfi vita um afdrif hennar en ekki mun ég úskýra það frekar til að forðast að vera með Höskuld (e. spoiler).

Ég get ekki annað sagt en að það að Vatikanið gæti tengst mann­ráninu á Emanuelu Orlandi komi mér akkurat ekkert á óvart því kaþólska kirkjan er í raun, að mínu mati, skipuleg glæpa­starfsemi, ekkert ósvipuð Vísinda­kirkjunni þó af öðrum toga. Kaþólska kirkjan hefur að minnsta kosti um áratuga­raðir tengst þúsundum barnaníðs­mála sem Vatikanið hefur hjálpað til við að þagga en allra nýjasta hneikslið snýr að prestum kirkjunnar í Frakk­landi. Hvað varð um Emanuelu Orlandi? Ég er ekki alveg viss en ég vitna í þáttinn og gamalt ítalskt orða­tiltæki, „Sama hversu vel þú reynir að hylja leyndar­málið, kemur sann­leikurinn ávalt á yfir­borðið að lokum.“

Fjölmiðla­pistill þessi birtist í nýjasta tölublaði Mannlífs sem má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning