Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Glæpagengi Íslands: Stunguárásir, lyfjamisnotkun og rapptónlist

Glæpa­gengi er hópur einstaklinga, oft fjöl­skylda eða vinir, sem fremja ýmis lögbrot. Slík gengi hafa ekki þekkst á Íslandi að neinu viti en eru algeng í mörgum löndum. Margir kannast ef til vill við bandarísk gengi sem hafa verið í sviðs­ljósinu í vestrænni menningu. Segja má að á Íslandi hafi skapast einhversskonar ofbeldis tísku­bylgja á meðal ungmenna, nánast undan­tekningar­laust fylgir þessu fíkniefna­neysla.

Oxy, MDMA og rapp

Lengi hefur fíkniefna­neysla verið vandamál hér á landi, líkt og annarsstaðar. Tísku­bylgjur í fíkniefna­neyslu fylgja straumum tónlistar. Síðasta áratuginn hefur rapp­tónlist verið einkum vinsæl á meðal barna og ungmenn en rann­sóknir benda til þess að aukning á neyslu ópíóða, MDMA, kókaíns og lyfseðils­skyldra lyfja megi rekja til texta úr rapplögum. Neyslan verður sífellt harðari og hættulegri efni eru notuð, mörg sem ýta undir árásar­girni. Í mörgum þeirra vinsælu laga sem hljóma í eyrum ungdómsins má heyra orðið „percocet“ en það er lyfseðisskylt verkjalyf, oftar þekkt undir nafninu Oxýkódon.

Lyfseðisskyld lyf og ofbeldi

Algeng aukaverkun verkja­lyfsins Oxýkódon eru breytingar í skapi, virkni og vitsmunum. Á vef Lyfja­stofnunnar stendur: „Ýmsar sálrænar aukaverkanir, svo sem skap­breytingar (t.d. kvíði, þunglyndi), breyting á athafnasemi (aðallega slæving, stundum ásamt svefnhöfga, stöku sinnum aukning ásamt taugaóstyrk og svefnvandamálum) og breyting á frammistöðu (hugsana­truflanir, rugl).“ Eru þetta algengar aukaverkanir lyfsins og má þá því bera líkur á að misnotkun þess auki líkurnar á skap­gerða­breytingum. Önnur aukaverkun lyfsins er árásar­girni en tíðni þess er ekki þekkt. Róandi lyf eru einnig vinsæl á meðal þessa hóps og er eitt af það þekktasta lyfið Rivotril, það tilheyrir flokki benzódíazepína, eða benzó eins og það er oft kallað. Benzó lyf eru mjög ávanana­bindandi, líkt og verkja­lyfin og eru því gjarnan misnotuð. Rívótríl er sterkt róandi lyf, það hefur þá leiðinlegu aukaverkun að valda gjarnar minnis­leysi í sambland við árásar­girni. „Tilfinning um fram­andleika gagnvart umheiminum og eigin persónu, sjúklega aukin heyrn, tilfinninga­leysi og náladofi í útlimum, óþol fyrir ljósi, hávaða og líkamlegri snertingu eða ofskynjanir,“ stendur í lyfseðli Rívótril, undir flokki aukaverkana. Einnig er talið upp „Fjandskapur og ógnandi, jafnvel ofbeldis­fullt atferli. Eirðar­leysi, gremja, óróleiki, tauga­veiklun, kvíði, svefn­truflanir, rang­hugmyndir, reiði, martraðir, óeðlilegir draumar, ofskynjanir (geta verið alvarlegar, hafið e.t.v. samband við lækni eða bráðamóttöku), geðrof/geðrænir kvillar (hafið samband við lækninn), óeirð og eirðar­leysi (ofvirkni), óviðeigandi hegðun og aðrar aukaverkanir á atferli.“ Það er því kannski ekki hægt að furða sig á því að ofbeldis­brot hafi aukist síðustu ár. Með tilkomu misnotkunar lyfseðisskyldra lyfja sem valda ótrúlegustu auka­verkunum eru venjuleg ungmenni orðin að ofbeldis­mönnum.

Gengi á Íslandi

Gengi myndast á einfaldan hátt, hópur vina sem misnotar lyf, áfengi eða önnur efni, lendir upp á kant við annan sambærilegan hóp. Þar eru orðin til tvö gengi. Tónlistar­menn lofsyngja gengi, lyf, ofbeldi og fangelsis­vist. Ungmenni með ómótaða heila gleypa við þessu, vilja finna sig einhversstaðar og telja þetta vera leið til þess að skapa sér sjálfs­mynd. Misnotkun lyfja getur ekki einungis valdið dauða, heldur algjörri skap­gerðar- og hegðunar­breytingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning