Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bókun 35 á mannamáli: „Þetta snýst um raunverulega Íslendinga“

„Hvernig tengjast súrsæl­gæt­isúði og fæðingar­orlof lækna Bókun 35?“

Ásta Marteinsdóttir, sjúkraliði og lögfræðinemi
Ásta Mart­eins­dóttir, sjúkra­liði og lög­fræði­nemi „Við erum búin að vera pínu dicks hvað þetta varðar“ Mynd: Facebook/Ásta

Töf á innleiðingu Bókunar 35 hefur rýrt réttindi íslenskra ríkis­borgara og grafið undan áreiðanleika EES-samningsins, að mati Ástu Marteins­dóttur, sjúkra­liða og lögfræði­nema. Hún bendir á að frum­varpið sé afrakstur margra ára vinnu þvert á flokka en ekki nýtilkomið pólitískt plott.

Miklar umræður hafa skapast í samfélaginu í kjölfar síðasta sjónvarps­þáttar Silfursins, þar sem tekist var á um fyrir­hugaða innleiðingu á Bókun 35 við EES-samninginn. Hafa sumir stjórn­málamenn látið að því liggja að tíma­setning frum­varpsins sé grun­samleg og tengist nýafstöðnum atburðum eða pólitískum hagsmunum.

Ásta Marteins­dóttir, sjúkra­liði á bráða­móttöku og lögfræði­nemi, hefur vakið athygli fyrir skýra samantekt á málinu á samfélags­miðlum. Hún telur umræðuna um tíma­setninguna missa marks og bendir á að málið eigi sér langa sögu innan stjórn­sýslunnar.

„Þetta er ekki nýtt mál. Frum­varpið var fyrst lagt fram á 153. löggjafar­þingi, síðan aftur á 156. löggjafar­þingi [...] og er nú lagt fram í þriðja sinn,“ segir Ásta. Hún bendir á að um stjórnar­frumvarp hafi verið að ræða þegar Sjálfstæðis­flokkurinn fór með utan­ríkis­ráðuneytið, auk þess sem Sigríður Á. Andersen hafi setið í starfs­hópnum sem samdi frum­varpið árið 2022. „Þess vegna finnst mér sérstakt að heyra nú talað eins og þetta sé eitthvað nýtt eða óásættanlegt frumvarp sem hafi skyndi­lega orðið til.“

Bitnar á réttindum almennings

Að sögn Ástu snýst málið fyrst og fremst um hagsmuni og réttindi raun­verulegra einstaklinga, en ekki flókna lagatækni. Hún nefnir sem dæmi nýlegt mál íslensks læknis sem flutti heim ófrísk en hún hafði verið við störf í Danmörku. Vegna þess að Bókun 35 hafði ekki verið réttilega innleidd í íslenskan rétt, gat Hæstiréttur ekki látið EES-reglur ganga framar yngri íslenskum lögum við útreikning fæðingar­orlofs.

„Afleiðingin var að ungur íslenskur læknir, sem kom aftur heim til að vinna á Land­spítalanum og eignaðist barn, fékk mun lægri fæðingar­orlofs­greiðslur en hún hefði átt rétt á,“ segir Ásta og spyr í fram­haldinu hvort slíkt sé fallið til þess að laða sérfræðinga til landsins.

Mistök sem þarf að leiðrétta

Í umfjöllun sinni rekur Ásta sögu málsins allt til ársins 1992 þegar EES-samningurinn var undir­ritaður. Bókun 35 hafi verið mála­miðlun sem Ísland samþykkti, þar sem kveðið var á um að innleiddar EES-reglur skyldu ganga framar andstæðum almennum lands­lögum ef árekstur yrði.

Þótt Alþingi hafi talið sig uppfylla þetta ákvæði með EES-lögunum árið 1993, sýndi hinn svokallaði „Bílskýla­dómur“ Hæstaréttar frá árinu 2010 fram á að svo var ekki. Síðan þá hefur Eftirlits­stofnun EFTA (ESA) gert alvarlegar athuga­semdir við íslensku útfærsluna og er málið nú komið í formlegt brota­ferli.

Ásta undir­strikar að þegar þjóð gangi undir alþjóð­legan samning verði hún að standa við gefin loforð.

„Vanda­málið er að Ísland lofaði að klára þetta fyrir löngu síðan, dró það á langinn árum saman og fólk hefur þegar orðið af réttindum sem það átti að njóta. Það finnst mér vera umræðan sem skiptir máli,“ segir Ásta að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning