Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fyrirmynd Þorbjargarinnar í Verbúðinni og kaup Samherja: „Guðbjörgin verður áfram gul“

Þessi baksýnis­spegill birtist þann 14. febrúar síðastliðinn og er nú endur­birtur.

Guggan verður áfram gul og gerð út frá Ísafirði.

Þessu lýstu Samherja­menn yfir, með Þorstein Má Baldvinsson fremstan í flokki, þegar þeir keyptu útgerðar­félagið Hrönn hf. á Ísafirði árið 1997. Hrönn átti og rak skipið Guðbjörgina ÍS og gerði hana út frá Ísafirði.

Í loka­þættinum í sjónvarps­þátta­seríunni Verbúðinni í gær er að finna spegil­mynd þessara atburða. Í þáttunum heitir fyrir­tækið sem er selt HG Sæfang og skipið Þorbjörgin. Atburða­rásin er nokkurn veginn sú sama, þrátt fyrir breytingar á persónum og leikendum. Sá sem talinn er endur­spegla Þorstein Má Baldvinsson heitir í þáttunum Gunnar Már og fer með hina fleygu setningu: „Þorbjörgin verður ennþá gul og hún verður gerð út frá Vestfjörðum.“

Þor­steinn Már Bald­vins­son

Kaupverðið leynilegt

Í DV þann 10. janúar árið 1997 má finna frétt um söluna og vanga­veltur um sölu­verðið með fyrir­sögninni „Guðbjörgin breyttist í gull og sjö hluthafar fá um tvo milljarða“.

„Við höfum haft mikla ánægju af þessu starfi og hvað það hefur gengið vel í gegnum árin. Við sáum hins vegar að við þurftum að breyta um, við áttum ekki nógan kvóta til að tryggja rekstur Guðbjargarinnar og þess vegna var gripið til þessa ráðs,“ segir Marías Þ. Guðmundsson, einn af stærstu hluthöfunum í Hrönn hf. sem nú hefur sameinast Samherja. Kaup Samherja á Akureyri á útgerðarfélaginu Hrönn hf. Ísafirði og á togaranum Guðbjörginni ÍS hafa vakið blendin viðbrögð á Vestfjörðum þótt fullyrt sé bæði af eigendum Hrannar og Samherja að Guðbjörgin verði áfram gerð út fráÍsafirði. Í meðfylgjandi grafi er reynt að slá verði á Hrönn og eignir hennar við yfirtöku Samherja og mun láta nærri aðseld hafi verið verðmæti í kvóta og öðrum eignum fyrir 1,9 milljarða króna. Það má því segja að Guggan hafi breyst í gull í einu vetfangi. „Guðbjörgin verður áfram á Ísafirði undir sínum lit og sínum einkennum og það er okkur mikils virði,“ segir Marías.

Hvorki Marías og hinir eigendur Hrannar, né eigendur Samherja, vildu gefa upp kaupverð Hrannar hf. Samkvæmt Maríusi áttu engir peningar að fara á milli manna við kaupin. Hann sagði í viðtalinu við DV að Hrönnin ásamt öllum gögnum og gæðum fyrir­tækisins yrði metin inn í Samherja. Strax og gengið yrði frá kaupunum með lögform­legum hætti myndu svo eigendur Hrannar hf. fá hlutabréf í Samherja út frá eignar­hluta þeirra.

Því hafði verið velt upp að Hrönn hf. hefði verið hlutfalls­lega metin inn í Samherja upp á 6 prósent. Það innihéldi kvóta Guðbjargarinnar, Guðbjörgina sjálfa sem var þá metin á 1,5 milljarða króna, þar af með milljarð í skuldir. Til viðbótar kæmu svo fasteignir og lausafé.

„Þetta er fráleit tala,“ sagði Marías þegar hann ræddi við DV.

Eftir­farandi segir í sömu frétt í DV:

Eigendur Hrannar voru systkinin Ásgeir, Margrét, Ragn­heiður, Hörður og Guðbjartur Guðbjartsbörn, Marías Þ. Guðmundsson og Guðmundur Guðmundsson, bróðir Maríasar. Enginn eigendanna hefur viljað láta uppi um eignar­hlut hvers og eins, en eftir því sem DV kemst næst mun Ásgeir Guðbjartsson hafa verið stærsti hlut­hafinn með um 30% eignar­hlut, Margrét systir hans komið næst með um 25%, þá Marías Þ. Guðmundsson með 20% og Guðmundur bróðir hans með um 17%. Láta mun nærri að saman­lagður eignar­hlutur þeirra Ragn­heiðar, Harðar og Guðbjarts Guðbjarts­sonar sé um 8% og skiptist hann jafnt milli þeirra mun láta nærri að þau hafi eignast rúmlega 50 milljóna króna hlut í Samherja.

Þau hlutabréf sem stærsti hlut­hafinn, Ásgeir Guðbjartsson, mun fá í hendur verða líklega með stærri tölu á, eða um 570 milljónir króna. Hlutur Margrétar verður um 475 milljónir króna, Maríasar um 380 milljónir króna og Guðmundar ríflega 320 milljónir. Eftir að búið verður að ganga lögformlega frá þessum kaupum, sem að sögn Maríasar verður trúlega í lok febrúar eða í byrjun mars, er ætlunin að setja hlutafélagið Samherja á almennan hlutafjármarkað. Samherji er nú talinn vera virði um 10 milljarða króna, en því hefur verið spáð að gengi bréfanna á markaði verið mjög hátt.

Guð­björgin.

„Bæjarbúar voru sviknir“

Í greiningu Gunnars Smára Egils­sonar, innsta kopps í búri Sósíalista­flokksins og fyrrum fjölmiðla­manns, á þessum viðskiptum Samherja við kaupin á Hrönn hf. frá árinu 2019 segir:

„Samherji gaf ekki aðeins út ný hlutabréf í tengslum við þessi kaup. Frændurnir gáfu líka út loforð að halda starfsemi Hrannar gangandi á Ísafirði og að Guggan myndi landa þar öllum sínum afla. Og sambærileg loforð voru gefin gagnvart Grind­víkingum, um stór­fellda atvinnu­uppbyggingu. Þessi loforð voru fullkomlega innistæðu­laus, frændurnir sviku þau svo fljótt að engar líkur eru á að þeir hafi nokkru sinni ætlað að standa við þau. Með þessum loforðum, sem á Ísafirði voru studd karakter­vottorði frá bæjar­stjóranum, Kristjáni Þór Júlíussyni, féllust fyrri eigendur á að Samherji tæki yfir reksturinn. Hugmyndin var að reksturinn yrði óbreyttur, að eigendur gætu varið eign sína og bæjarbúar haldið vinnu sinni. Eigendurnir voru hólpnir og hafa örugglega hlegið alla leið í bankann. En bæjarbúar voru sviknir. Guggan landaði aldrei á Ísafirði, kvótinn var fluttur á önnur skip Samherja og Guggan var seld úr landi 1999, til fyrir­tækis Samherja í Þýska­landi.

Hagnaður Samherja af þessum snúningi á eigendum Fiskimjöls og lýsis og Hrannar, og á bæjarbúum í Grindavík og á Ísafirði, nam um 18.378 m.kr. miðað við núvirði kvótans. Þá reiknum við aðrar eignir í þessum viðskiptum upp á núll; rekstur, hús, skip og tæki. Ef við reiknum með 3,5% ávöxtun á þessa fjárhæð frá árinu 1997 þá ætti hún að hafa ávaxtast og orðið að um 40,5 milljörðum króna í dag. Það jafn­gildir um 36,5% af auð Samherja í dag.“ 

Þegar Samherji keypti útgerðar­félagið Hrönn hf. inn í fyrir­tækið sagði forstjóri Samherja, Þorsteinn Már Baldvinsson, í viðtali við Ríkis­útvarpið að Ísfirðingar þyrftu engar áhyggjur að hafa af viðskiptunum. Breytingin myndi ekki draga úr umsvifum í bænum. Loforðin hans þrjú, að Guðbjörgin yrði áfram gul, að hún yrði áfram ÍS og að hún yrði áfram gerð út frá Ísafirði, voru að endingu öll svikin. Reyndar var það svo að Guðbjörgin landaði aldrei aftur á Ísafirði og Samherji flutti kvótann á önnur skip í sinni eigu. „Guggan“ var svo seld til Þýska­lands einungis tveimur árum síðar.

Gunnar Smári Egilsson Mynd. Skjáskot/RÚV

„Ég bara sagði þetta“

„Mér brá þegar ég sá aflatölur fyrir Guðbjörgina á síðasta ári. Tölurnar voru eins og þarna væri trilla á ferðinni í saman­burði við hina frysti­togarana. Þeir hafa notað skipið á skrapi hingað og þangað. Þetta var aflahæsta skip landsins ár eftir ár. Við vorum sárir þegar Guðbjörgin fór frá Ísafirði á sínum tíma, en þetta verða hinsvegar að teljast eðlilegir viðskipta­hættir eins og kaupin gerast á eyrinni,“ sagði Sigurður R. Ólafsson, formaður Sjómanna­félags Ísfirðinga í viðtali við Morgun­blaðið, þegar fregnir bárust af sölu Guðbjargarinnar til Þýska­lands árið 1999.

Ekki eru mörg ár síðan í ljós kom að það var rétt sem fyrri eigendur Hrannar höfðu alltaf haldið fram, að loforðið um Guðbjörgina og útgerð frá Ísafirði hefði verið skriflegt. Það var fyrrum alþingis­maðurinn Kristinn H. Gunnarsson sem birti yfir­lýsinguna á heimasíðu sinni árið 2018. Hún er undir­rituð af Þorsteini Má fyrir hönd Samherja og Ásgeiri Guðbjarts­syni fyrir hönd Hrannar hf. Yfir­lýsingin er dagsett þann 7. janúar árið 1997 og í henni segir:

„Frétta­tilkynning. Hluthafar Samherja h.f. Akureyri og Hrannar h.h. Ísafirði hafa undir­ritað samkomulag um að sameina þessi sjávar­útvegs­fyrirtæki. Samkomulag er um að útgerð Guðbjargar ÍS verði óbreytt frá því sem verið hefur á Ísafirði.“

Afrit af skrif­legu yfir­lýs­ing­unni.

Þegar Samherji seldi Guðbjörgina sagði Þorsteinn Már yfir­lýsinguna hafa verið mistök, en að ekki hefði verið um „bindandi loforð“ að ræða.

„Aðstæður í sjávar­útvegi eru það breytilegar að það verður að viðurkennast. Sjávar­útvegurinn er eins og sjórinn, síbreytilegur,“ sagði hann í viðtali við Morgun­blaðið. Þessu svipar mjög til þess sem Gunnar Már segir í lokaþætti Verbúðarinnar við sama tilefni.

Aðspurður hvort hann hafi verið að taka tillit til byggða­sjónarmiða með yfir­lýsingunni sagði Þorsteinn Már:

„Ég bara sagði þetta og það hafði ekkert með pólitík eða bæjar­stjórn að gera.“

„Eins og í glæpa­seríum á borð við Narcos ætti næsta sería af Verbúðinni að fylgja Samherja­mönnum,“ sagði Gunnar Smári Egilsson í pistli sem hann ritaði á Facebooksíðu sína í tilefni af lokum sjónvarpsþáttaraðarinnar Verbúðarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá