Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Ef bændur ætla ekki að standa vörð um eigin hagsmuni þá mun enginn gera það fyrir þá

Viðmælandi Guðna Ágústs­sonar að þessu sinni er Gunnar Þorgeirsson, formaður Bænda­samtakanna. Gunnar hefur rekið Gróðararstöðina Ártanga á samnefndri jörð í Grímsnesi frá því að hann og kona hans byggðu þar nýbýli árið 1986.

Gunnar tók við á erfiðum tímum fyrir Bænda­samtökin en Hótel Saga ehf. sem rak samnefnt hótel og var í eigu Bænda­samtakanna varð lýst gjald­þrota síðla árs 2021. Spurður hvort Covid-19 hafi sett hótelið á hausinn játar Gunnar því og kallar málið allt eina sorgar­sögu „það eru ýmis kenni­leiti til ársins 2020 sem gerir það að verkum að þetta varð í rauninni ekki að neinu. Það er líka umhugsunar­vert að þegar menn fara inn á Búnaðar­þing, sko hvað er þetta 2017 frekar en 2016, með samþykkt kaup­tilboð frá stjórn inn á Búnaðar­þing sem fellir þetta með örfáum atkvæðum. Síðan eftir það þá er farið í ýmsar ráðstafanir sem að leiða það að verkum að nánast allt eigið fé er brunnið upp til ösku. Farið í heilmikið viðhald og endur­bætur sem kostuðu umtals­verða fjármuni og ég held að þetta hafi ekki verið góð ráðstöfun.“

Spurður út í starfsemi Bænda­samtakanna vekur Gunnar athygli á því þegar búnaðar­gjald var afnumið, frá og með gjaldári 2018 í kjölfar dóms Mannrétindadómstóls Evrópu um iðnaðar­málagjald, og það stillt á núll er í dag enginn Bjargráða­sjóður og enn fremur litlir sem engir peningar til rannsókna­sjóðanna „rann­sóknir, tilraunir og kynbætur – þetta fór allt út með því að setja búnaðar­gjaldið í núll! Og svo segja menn að við verðum að reka Bænda­samtökin á framlögum bænda eða sem sagt bændur reka sitt félags­kerfi, gott og vel, en ég held að menn hafi bara ekkert hugsað þetta alla leið á þeim grunni að veltu­tengt búnaðar­gjald var 1,2% af allri veltu í íslenskum land­búnaði og tekjurnar sem Bænda­samtökin höfðu á þessum tíma á þessum grunni voru um 800 milljónir króna. Á þessu ári erum við að berjast við að ná endum saman með um 180-190 milljónir króna í félags­gjöldum frá bændum og þá eigum við eftir að reka allt tilrauna­starfið og allt hitt. Ég segi nú bara að ég held líka að bændur þurfi að horfa til þess að ef bændur ætla ekki að standa vörð um eigin hagsmuni þá mun enginn gera það fyrir þá.“

Þeir verða að standa á bak­við Bænda­sam­tök Íslands ef þeir ætla að hafa ein­hvern sam­eig­in­legan málsvara í slagnum. Það er bara þannig; standa sem heild í því.

Um hlutverk Bænda­samtakanna segir Gunnar „Bænda­samtök Íslands eru í raun og veru hagsmuna­samtök bænda um hvernig eru lög og reglur um aðbúnaðar­hætti og eftirlit og reglu­gerðir um starfs­leyfi þeirra sem þurfa starfs­leyfi. Svo samtalið við ríkis­valdið um hvernig við útfærum búvöru­samninga.“

Það er álit Gunnars að búvöru­samningar ættu að vera endur­skoðaðir einusinni á ári í stað þess að vera gerðir á tíu ára fresti þar sem nú er uppi gerbreytt staða. Milli endur­skoðunar­ákvæða áranna 2019 og 2023 hafi ýmislegt breyst eins og hækkanir á aðföngum til land­búnaðar og áburðar­verð í sögulegu hámarki. Til lausna á áburðar­vandanum stingur Gunnar upp á að umfram sú orka sem fellur til við álframleiðslu og fyrir­hugað er að nýta til vinnslu raf-eldsneytis verði jafnframt nýtt til áburðar­framleiðslu enda þurfi þær verksmiðjur sem vinna raf-eldsneyti litlar viðbætur til að framleiða áburð einnig.

Spurður út í byggða­málin lítur Gunnar svo á að Íslendingar séu velviljaðir íslenskum land­búnaði og að Íslendingar kjósi frekar að sjá blómlegar byggðir og slegin tún en arfa og illgresi „

það er ekki alveg gott að stýra byggða­þróun með framleiðslu­styrkjum sko. Ef við ætlum að hafa landið í byggð sem allflestir eru sammála um þá þurfum við að gera það í gegnum stuðning um byggð og byggðir. Eini byggða­stuðningurinn er kannski greiðslu­mark í sauðfé en þú ætlar kannski ekkert að vera þar sko. Þá segi ég bara og hvernig ætla menn þá að veita byggða­stuðning í þessum dreifðu byggðum sem eiga undir högg að sækja.“

Gunnar nefnir svo að við sem þjóð og fram­leiðendur landbúnaðar­vara ættum frekar að einblína á hágæða vöru til útflutnings en ekki líta til þess að framleiða þúsundir tonna af lamba­kjöti til Banda­ríkjanna.

Við eigum að vera í gæða­vöru sem er fram­leidd með hreinu íslensku vatni, engum sýkla­lyfjum og á þeim grunni eigum við að geta pres­enterað vör­una.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt