Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Söruh Ferguson ekki boðið í krýningu Karls III: „Virkar svolítið grimmt, ekki satt?“

Kalli kóngur
Kalli kóngur

Sarah Ferguson sást nokkuð niður­dregin yfirgefa hið konunglega sveita­setur, Royal Lodge í Windsor, eftir að hafa verið snupruð við afhendingu boðsmiða á krýningu Karls III Bretlands­konungs.

Hin 63 ára hertoga­yngja af Jórvík, sást í farþegarsæti Range Rover bifreiðar sem ekin var af fyrr­verandi eigin­manni hennar, Andrési prins. Hin tveggja barna móðir var hversdags­lega klædd samkvæmt Mirror en hún var í drapp­lituðum jakka, skyrtu og með svört, kringlótt gleraugu. Andrés, einnig 63 ára, var klæddur í dökkbláa peysu yfir rauða skyrtu á meðan hann keyrði bifreiðinni út af lóðinni.

Andrés prins (og meintur barn­a­níð­ingur) og Sarah Ferguson

Fyrr í vikunni var tilkynnt að hertogaynjan af Jórvík væri ekki boðið í krýningu Karls III í næsta mánuði, þrátt fyrir að dætur hennar og Andrésar, Beta Dís prinsessa og Evgenía prinsessa, verði þar.

Sérfræðingur heldur því fram að ástæðan fyrir þessu sé sú að Karl III finnist hún vera til skammar og sé ekki lengur partur af konungs­fjöl­skyldunni. Tom Bower, konunglegur frétta­ritari sagði MailOnline að Sarah hefði útilokað sjálfa sig með fyrri hegðun sinni.
Bætti hann við að nærvera hennar myndi „vekja neikvæða athygli, sem Karl þarf ekki á að halda.“

Richard Fitzwilliams, sérfræðingur í konungs­fjöl­skyldunni hrósar konuningum fyrir þessa „einstak­lega viturlega“ ákvörðun því hún hafi verið „konungs­fjöl­skyldunni til skammar um árabil.“

Ekki eru allir þó ánægðir með ákvörðun konungsins en vinur Meghan Markle, Omid Scobie tvítaði: „Ef þetta er satt, þá virkar þetta svolítið grimmt, ekki satt?“

Fregnirnar koma í kjölfær þeirra frétta að Harrý prins mun mæta á krýningu föður síns en án eigin­konunnar og barna þeirra, Boga og Lilju.

En hvað eru þessu skammar­legu atvik sem Sarah hefur verið viðriðin í gegnum árin? Sem dæmi má nefna það er ljós­myndir birtust í dagblöðum þar sem hún sást njóta þess að láta sjúga á sér tærnar af fjármála­ráðgjafa hennar, John Bryan, í orlofs­villu hennar í St. Tropez. Þau sáust einnig kyssast, faðmast og ærslast í lauginni.

Þá var talað um að vinaslit hefðu orðið hjá henni og Díönu prinsessu eftir að Sarah sagðist hafa fengið vörtu á fótinn eftir að hafa fengið lánaða skó hjá Díönu. Þær töluðust ekki enn við er prinsessan lést í hræðilegu bílslysi árið 1997.

Árið 2010 þurfti hún að biðjast opinber­lega afsökunar þegar falin myndavél sýndi hana selja aðgang að Andrési fyrir tæpar 85 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Meðal þeirra sem þar hafa búið eru Cher, Elton John, Lindsay Lohan og Courteney Cox.
Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt