Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Anna er til í heiðurssæti á lista Samfylkingarinnar: „Það eru kosningar í nánd og ég hlakka til“

Anna Kristjánsdóttir.
Anna Krist­jáns­dóttir. Mynd: Facebook

Anna Krist­jáns­dóttir er spennt fyrir þing­kosn­ing­unum í nóv­em­ber og væri helst til í að vera í heið­urs­sæti Sam­fylk­ing­ar­innar.

Gleði­gjaf­inn og vél­stjór­inn Anna Krist­jáns­dótitr talar um vænt­an­legar alþing­is­kosn­ingar sem fara fram í lok nóv­em­ber, í nýrri dag­bók­ar­færslu á Facebook. Í færsl­unni seg­ist hún einu sinni hafa verið á fram­boðs­lista, en það var árið 2009. Þó að hún hafi ekki verið í nema 19 sæti list­ans vill Anna meina að kosn­inga­sig­ur­inn sem vannst það árið hafi að miklu leyti verið henni að þakka.

„Dagur 1891 – Kosn­ingar framundan.

Ég heyrði í útvarp­inu í gær­kvöldi, að ef allir fram­boðs­listar í öllum kjör­dæmum yrðu fylltir, þá yrðu um 1000 manns í fram­boði, er þá ekki reiknað með ein­hverjum sér­fram­boðum öðrum en hins svo­kall­aða Lýð­ræð­is­flokks Arnars Þórs Jóns­sonar.

Sjálf hefi ég einu sinni lent á fram­boðs­lista, en það var árið 2009, en þá var ég í 19. sæti í Reykja­vík suður fyrir Sam­fylk­ing­una. Þótt ég hafi ekki riðið feitum hesti per­sónu­lega frá þeim kosn­ingum, þá vannst stærsti kosn­inga­sigur í sögu Sam­fylk­ing­ar­innar, alla­vega fram að þessu og að sjálf­sögðu þakka ég sjálfri mér fyrir þennan glæsi­lega sigur. Ég skil svo ekk­ert í því af hverju mér var ekki boðið á lista eftir það miðað við hversu mikil áhrif ég hafði á sigur flokks­ins.“

Segir hún það hafa staðið henni reyndar til boða að vera á heið­urs­sæti í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæmanna árið 2021 en þá hafi hún verið flutt til Tenerife og ekki getað það.

„Reyndar var haft sam­band við mig fyrir kosn­ing­arnar 2021 og kannað hvort ég vildi taka heið­urs­sæti í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæmanna, en þar sem ég er með heim­il­is­festi á Tenerife, kom það auð­vitað ekki til greina og ég fór grát­andi heim. Best að taka það fram enn og aftur að þótt ég sé með heim­il­is­festi hér á eyj­unni, þá er ég ekki með lög­heim­ili hérna. Þar er ég vafa­laust óstað­sett í hús í Reykja­vík norður í kjör­deild númer átta í Ráð­hús­inu, enda greiði ég mína skatta og skyldur á Íslandi.“

Síðar í færsl­unni segir Anna í loka­orðum sínum, að hún ætli að sjá hvernig hinn nýji for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar tekur á Evr­ópu­málum.

„Ég veit svo ekk­ert um það hvort ég megi fara í fram­boð á Íslandi miðað við þessar for­sendur, en látum kyrrt um liggja. Sú sem vildi bjóða mér heið­urs­sætið er hætt á Alþingi og ég á eftir að sjá hversu vel nýi for­mað­ur­inn tekur á Evr­ópu­mál­unum sem eru að sjálf­sögðu mín hjart­ans mál síðan ég gerði þau mis­tök að greiða atkvæði gegn Evr­ópu­sam­bands­að­ild Sví­þjóðar árið 1994.

En það eru kosn­ingar í nánd og ég hlakka til.“

Hér má sjá færsl­una í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið