Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Helgi Seljan biðst afsökunar

„Og hvað nú?“

Helgi Seljan
Helgi Seljan Er einn þekkt­asti fjöl­miðla­maður Íslands. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fjölmiðla­maðurinn Helgi Seljan gagnrýnir harðlega ákvörðun um að hætta frétta­útsendingum Stöðvar 2 og segir lokun frétta­stofunnar marka mikil tímamót í íslenskri fjölmiðla­sögu. Þetta kemur fram í ítarlegri færslu sem Helgi birtir á Facebook.

Helgi segir frétta­stofu Stöðvar 2 hafa gegnt lykil­hlutverki í íslenskri fjöl­miðlun allt frá stofnun hennar fyrir fjörutíu árum. Að hans mati hafi tilkoma frétta­stofunnar leitt til mikilla framfara í íslenskri blaða­mennsku og jafnframt veitt öðrum fjöl­miðlum, ekki síst RÚV, mikilvægt aðhald.

„Frétta­stofan hefur síðan, oft verið leiðandi í gagn­rýninni blaða­mennsku en líka séð til þess að halda keppinautum sínum – þá helst RÚV – við efnið,“ skrifar Helgi.

Hann þekkir starfsemina af eigin raun en starfaði á frétta­stofunni í tvö ár fyrir um tveimur áratugum. Þar hafi starfað reynslu­mikið fagfólk sem hafi lagt áherslu á gagnrýna og aðgangs­harða blaða­mennsku.

Helgi beinir jafnframt sjónum að eigendum Sýnar undan­farin ár og sérstak­lega aðkomu íslenskra lífeyris­sjóða. Hann nefnir meðal annars Lífeyris­sjóð verslunar­manna, Gildi, Lífeyris­sjóð starfs­manna ríkisins og Birtu og gagnrýnir að þeir hafi fylgst með þróun fyrir­tækisins án þess að koma í veg fyrir þá stöðu sem nú sé komin upp.

Hann segir sjónvarps­fréttastofu vissulega ekki vera auðveldan eða sérstak­lega arðbæran rekstur en telur jafnframt að ýmsar ákvarðanir hafi verið teknar í rekstri fyrir­tækisins undan­farinn áratug sem vert sé að gagnrýna.

Helgi segir sérstak­lega kaldhæðnislegt að Lífeyris­sjóður verslunar­manna sé lífeyris­sjóður margra þeirra blaða­manna sem nú hafi misst störf sín.

Í lok færslunnar beinir Helgi orðum sínum að fyrr­verandi samstarfs­fólki sínu sem annaðhvort hafi verið sagt upp eða sitji áfram eftir á frétta­stofunni við breyttar aðstæður.

„Ég hef að vísu borgað í þrjá af þessum lífeyris­sjóðum – sem eiga eða áttu ykkur, svo kannski fer bara best á því ég biðji ykkur afsökunar,“ skrifar Helgi og lýkur færslunni á spurningunni:

„Og hvað nú?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning