Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Börn Dönu Jóhannsdóttur stíga fram eftir ákæru á hendur Skúla

„Skúli Tómas Gunnlaugsson hefur látið hafa eftir sér að sann­leikurinn muni sigra að lokum. Við vonum innilega að honum verði að þeirri ósk.“

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja Meint brot átti sér stað á Heil­brigð­is­stofun Suð­ur­nesja Mynd: Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Börn Dönu Jóhanns­dóttur hafa sent frá sér yfir­lýsingu í kjölfar þess að ákæra var gefin út á hendur lækninum Skúla Tómasi Gunnlaugs­syni fyrir manndráp í starfi. Þau segja móður sína hafa látist af afleiðingum meðferðar sem ekki hafi verið réttlætanleg.

Í yfir­lýsingunni segja þau:

„Við undir­rituð erum uppkomin börn Dönu Jóhanns­dóttur, sem héraðs­saksóknari telur að hafi verið drepin á opinberu sjúkra­húsi. Dánar­orsök hennar var fjöl­kerfabilun, sem er fyrir­sjáanleg afleiðing af því að hneppa manneskju í lyfja­fjötra sem valda því aftur að hún getur ekki borið sig eftir næringu og vökva.“

Segja málið ekki flókið

Börnin hafna þeim sjónar­miðum Skúla að málið sé flókið og erfitt fyrir ákæru­valdið að meta:

„Þessi ummæli eru óttaleg þvæla. Það er löngu búið að fara yfir málið heild­stætt á þessum fimm árum sem það hefur verið í rannsókn.“

Þau benda á að umfangs­mikil rannsókn hafi farið fram með aðkomu matsmanna og fjölda vitna úr heilbrigðis­geiranum.

Í yfir­lýsingunni er vitnað til niður­stöðu dómkvaddra matsmanna:

„Nei, það voru ekki forsendur til að hefja lífsloka­meðferð en það voru forsendur til að halda áfram líknar­meðferð. Verklagi við framkvæmd líknandi/lífsloka­meðferð var ekki fylgt.“

Þá komist matsmenn einnig að þeirri niður­stöðu að lyfja­meðferð móður þeirra hafi ekki verið eðlileg miðað við ástand hennar.

Börn Dönu segja að skýringar Skúla á því að hugtakið „lífsloka­meðferð“ hafi verið notað í víðari merkingu standist ekki:

„Það er í ósamræmi við framburð heilbrigðis­starfsfólks.“

Þau benda einnig á að móðir þeirra hafi verið sett á lífsloka­meðferð skömmu eftir innlögn, þrátt fyrir að hafa verið skráð á fulla endur­lífgunar­meðferð þremur vikum áður.

Löng málsmeðferð

Í yfir­lýsingunni er rakin tímalína málsins, frá andláti Dönu 19. október 2019 til kæru til lögreglu og margra ára rann­sóknar. Undir­rituð gagnrýna jafnframt að læknirinn hafi starfað áfram á Land­spítalanum á meðan rannsókn stóð yfir.

Þau segja:

„Það þótti aftur á móti ekkert að því að hafa manninn í starfi á opinberu sjúkra­húsi, árum saman, þótt hann væri grunaður um að hafa valdið dauða a.m.k. 6 sjúklinga.“

Gagnrýna kerfið harðlega

Í yfir­lýsingunni er einnig gagnrýnt það sem þau kalla skort á aðhaldi innan heilbrigðis­kerfisins og laga­breytingar sem þau telja hafa torveldað rannsókn mála af þessu tagi.

Þau segja meðal annars:

„Nánar tiltekið er lögreglu bannað að nota rann­sóknargögn frá land­læknis­embættinu við rannsókn sakamála. Það er bagalegt í þessu máli því gögn kvörtunar­málsins hafa mikilvægt sönnunar­gildi sem nú fer forgörðum.“

Vonast eftir réttlæti

Að lokum vísa þau til orða Skúla um að sann­leikurinn muni koma í ljós:

„Skúli Tómas Gunnlaugsson hefur látið hafa eftir sér að sann­leikurinn muni sigra að lokum. Við vonum innilega að honum verði að þeirri ósk.“

Yfir­lýsingin er undir­rituð af Begga Dan Gunnars­syni, Borghildi B. Hauks­dóttur, Evu Hauks­dóttur og Hugljúfu Dan Jensen.

Hér má sjá yfir­lýsinguna í heild sinni:

Yfirlýsing frá börnum Dönu Jóhannsdóttur

Skúli Tómas Gunnlaugsson, fyrr­verandi yfir­læknir á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja, hefur nú verið ákærður fyrir manndráp í starfi. Við undir­rituð erum uppkomin börn Dönu Jóhanns­dóttur, sem héraðs­saksóknari telur að hafi verið drepin á opinberu sjúkra­húsi. Dánar­orsök hennar var fjöl­kerfabilun, sem er fyrir­sjáanleg afleiðing af því að hneppa manneskju í lyfja­fjötra sem valda því aftur að hún getur ekki borið sig eftir næringu og vökva.

Í tilefni af ákvörðun héraðs­saksóknara um að gefa út ákæru, hefur læknirinn látið hafa eftir sér að málið snúist um flókin læknis­fræðileg atriði sem sé erfitt fyrir ákæru­valdið að átta sig á og að loksins verði nú hægt að fara yfir þetta heild­stætt. Þessi ummæli eru óttaleg þvæla. Það er löngu búið að fara yfir málið heild­stætt á þessum fimm árum sem það hefur verið í rannsókn. Ákæru­valdið áttaði sig á máls­atvikum með aðstoð dómkvaddra matsmanna auk þess sem vitna­skýrslur voru teknar af miklum fjölda heilbrigðis­starfsfólks.

Ein helsta niður­staða hinna dómkvöddu matsmanna var þessi: "Nei, það voru ekki forsendur til að hefja lífsloka­meðferð en það voru forsendur til að halda áfram líknar­meðferð. Verklagi við framkvæmd líknandi/lífsloka­meðferð var ekki fylgt." Einnig komast hinir dómkvöddu matsmenn að þeirri niður­stöðu að sú lyfja­meðferð sem móðir okkar sætti hafi ekki verið eðlileg að teknu tilliti til ástands hennar og sjúkdóms­greiningar.

Skúli hefur borið því við að á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja hafi "lífsloka­meðferð" verið notað um líknar­meðferð í víðtækri merkingu. Það er í ósamræmi við framburð heilbrigðis­starfsfólks. Það er einnig í ósamræmi við þá skjal­festu staðreynd að Skúli setti móður okkar á fulla meðferð að endur­lífgun þrem vikum áður en hún kom í hvíldar­innlögn á HSS, þann 1. ágúst 2019, en þá var hún umsvifa­laust sett á lífsloka­meðferð.

Við meðferð máls móður okkar hjá embætti land­læknis var óháður sérfræðingur fenginn til að skrifa álitsgerð um málið. Niður­staða hans var sú að ekki hefðu verið forsendur fyrir lífsloka­meðferð. Sérfræðingar embættisins komust að sömu niður­stöðu og töldu meðferðina hafa borið öll einkenni lífsloka­meðferðar. Tveir dómkvaddir matsmenn komust einnig að þeirri niður­stöðu að sú meðferð sem hún fékk í síðustu legu sinni á HSS hafi borið einkenni lífsloka­meðferðar sem ekki voru forsendur fyrir. Að kröfu Skúla voru þeir látnir endur­skoða mats­gerðina og komust þá aftur að sömu niður­stöðu.

Móðir okkar dó 19. október 2019. Við sendum kvörtun til land­læknis þrem vikum síðar, þann 11. nóvember 2019. Málið var í rannsókn í fimmtán mánuði, lauk þann 17. febrúar 2021. Okkur þótti það langur tími en í ljósi þess að máls­meðferðar­tími land­læknis er á bilinu 1-4 ár megum við víst teljast heppin. Kæra var lögð fram hjá lögreglu þann 23. febrúar 2021 og var svo rúm fimm ár í rannsókn, fyrst hjá lögreglu og svo héraðs­saksóknara. Læknirinn var sviptur starfs­leyfi tíma­bundið en var fljótt kominn aftur í vinnu á Land­spítalanum og hefur starfað þar við að sinna sjúklingum meirihluta þess tíma sem málið hefur verið til rann­sóknar.

Þegar ákæra var gefin út afþakkaði Land­spítalinn vinnu­framlag lífsloka­læknisins. Það þótti aftur á móti ekkert að því að hafa manninn í starfi á opinberu sjúkra­húsi, árum saman, þótt hann væri grunaður um að hafa valdið dauða a.m.k. 6 sjúklinga. Lækna­mafían lýsti yfir stuðningi við Skúla og heilbrigðis­ráðherra kom í gegn lögum til verndar heilbrigðis­starfsfólki sem skaðar og drepur sjúklinga. Nánar tiltekið er lögreglu bannað að nota rann­sóknargögn frá land­læknis­embættinu við rannsókn sakamála. Það er bagalegt í þessu máli því gögn kvörtunar­málsins hafa mikilvægt sönnunar­gildi sem nú fer forgörðum.

Skúli Tómas Gunnlaugsson hefur látið hafa eftir sér að sann­leikurinn muni sigra að lokum. Við vonum innilega að honum verði að þeirri ósk.

Beggi Dan Gunnarsson

Borghildur B. Hauks­dóttir

Eva Hauks­dóttir

Hugljúf Dan Jensen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning