Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Ísidór og Sindri verða ákærðir fyrir meint hryðjuverk

„Það er viðbúið að þeim verði kynnt ákæra,“ segir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embætti héraðs­saksóknara. Í dag ætlar hann að fara fram á áfram­haldandi gæslu­varðhald yfir mönnunum tveimur sem hafa verið í haldi frá því um miðjan september í tengslum við rannsókn á hryðjuverka­málinu svokallaða.

Þeir verða ákærðir fyrir 100. grein hegningar­laga þar sem fjallað er um hryðju­verk og eða undir­búning þeirra. RÚV greindi frá.

Sjá einnig: Faðir Sigríðar selur byssur á netinu – Allsendis óvíst hvort hann tengist hryðjuverka­málinu

Mennirnir tveir sem eru í haldi lögreglu grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðju­verk á Íslandi heita Ísidór Nathansson 24 ára og Sindri Snær Birgisson 25 ára. Þá má sjá á myndinni hér fyrir ofan en Ísidór er til vinstri og Sindri til hægri. Ísidór, í það minnsta, var eldheitur Sjálfstæðis­maður. Mennirnir voru hand­teknir í umfangs­miklum aðgerðum lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu, sérsveitar ríkis­lögreglu­stjóra og embætti héraðs­saksóknara.

Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttar­lögmaður segir að allir þeir sem þekkja umbjóðanda sinn, Sindra Snæ, viti að hann gæti ekki gert flugu mein. Lögmaðurinn segir talið milli tvímenninganna vissulega hafa verið smekk­laust en engin alvara hafi verið þar að baki.

„Það var nú ekki meiri leynd yfir þessu ráða­bruggi öllu saman en að þeir voru að fimbulfamba þetta á opinni spjallrás. Töluðu saman á Signal. Þetta er kokteill af ósmekk­legu gríni og fabúla­sjónum. Ekkert á bak við þetta,“ segir Sveinn Andri í samtali við DV:

„Það var engin alvara á bak við þetta smekk­lausa spjall þeirra. Allir sem þekkja minn umbjóðanda vita að hann gæti ekki gert flugu mein. Ég hef auðvitað ekki umboð til að tala fyrir hinn. En minn umbjóðandi er algert meinleysis­grey með ofsalegan áhuga á byssum. Hann hefur vissulega gerst sekur um brot á vopna­lögum með því að prenta byssur. Þetta varð hobbý hjá honum í covid. Minn maður verður dæmdur fyrir vopna­lagabrot. Punktur. Þetta mál er hvorki fugl né fiskur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Sveitarfélagið taldi eigendur kattarins ekki eiga aðild að máli um eftirlit með hundahaldinu og synjaði þeim um aðgang að gögnum.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis