Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Man ekki eftir vetrarfríum í æsku og þó: „Skítareddingar eru bestar!“

Stefán Pálsson sagnfræðingur.
Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur.

Stefán Pálsson segist ekki muna eftir skóla­fríum í æsku en segist þó muna eftir að hafa eytt fjöldi daga í vinnunni hjá föður sínum og fleiri ættingjum.

Nú þegar vetrarfrí er hafið í mörgum grunn­skólum, að minnsta kosti á höfuð­borgar­svæðinu, hafa foreldrar þurft, líkt og áður, að redda málunum á ýmsan hátt, til að láta heimilis­lífið ganga. Sagn­fræðingurinn og spurningakeppnis­gúrúinn bráð­skemmtilegi, Stefán Pálsson skrifaði spaugilega færslu í gær, á fyrsta degi vetrar­frís ýmissa grunn­skóla höfuð­borgar­svæðisins. Segist hann ekki muna eftir vetrarfríium í æsku en þó muni hann eftir að hafa eytt ómældum tíma í vinnu föður síns og fleiri ættingjum. Færsluna má lesa hér:

„Í minningunni voru aldrei frí í skólanum þegar ég var pjakkur. Þess vegna hnussa ég yfir öllum starfs­dögunum, vetrar­fríunum og Óðinn má vita hvað þetta heitir allt saman…

En um leið man ég eftir öllum dögunum sem ég varði í vinnunni hjá pabba, afa eða öðrum tilfall­andi ættingjum til að brúa eitthvað bil. Mamma var kennari og því augljós­lega ekki hægt að láta mig hanga uppí skólanum hennar nema í allra ítrustu neyð. Ömmur mínar unnu á kontórnum hjá SÍF og í vinnslunni hjá Slátur­félaginu og það var enginn staður fyrir börn heldur.En pabbi vann á Hafró og afi var hjá BSRB og þar var hægt að láta gutta í skólafríi skottast um. Helsta afþreyingin fólst í því að fá að teikna á fágætan ljósritunar­pappír, fikta í stimplum og göturum, leika sér í lyftunni og í húsi Hafrannsóknarstofnunar voru uppstoppaðir furðu­fiskar á hverri hæð að skoða og svo var sjoppa í mótttökunni þar sem ég fékk að raða sígarettu­pökkum og Valencia-súkkulaði­plötum. Þessir dagar voru eftir á að hyggja margfalt minnis­stæðari en hvunndagsrútínan í skólanum sem öll rann út í eitt.

Skíta­reddingar eru bestar!“

Í kjölfar færslunnar skrifuðu margir athuga­semdir og rifjuðu upp sínar minningar í skóla­fríum fortíðar. Ein þeirra var Eva Hauks­dóttir lögmaður: „Ég man ekki eftir neinum vetrar­fríum en aftur á móti 15 vikna sumarfríi. Og starfs­dögum kennara sem þá hétu mánaðarfrí.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim