Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Daníel gefur út plötur tvo daga í röð: „Stundum er alltof mikið að gera“

Daníel vann til verðlauna sem Bjartasta Vonin –
Daníel vann til verð­launa sem Bjartasta Vonin – Mynd: Eyþór Árnason

Daníel Helgason, einn færasti gítar­leikari landsins, gefur loksins út fyrstu sóló­plötuna.

Það eru ekki margir tónlistar­menn sem gefa út tvær plötur á einu ári en Daníel Helgason bætir um betur og gefur út plötur tvo daga í röð. Daníel hefur lengi verið einn af færustu gítar­leikurum landsins og hann hefur verið virkur þátt­takandi í íslensku tónlistar­lífi undan­farin ár með Los Bomboneros, DÓH tríó, Unu Stef og fleirum en Daníel er einnig tónlistar­kennari. Daníel er uppalinn Breiðhyltingur og býr þar með konu sinni og dætrum. Mannlíf ræddi við Daníel um hvernig það kom til að gefa út plötur tvo daga í röð.

„Þetta var nú engan veginn planað svona,“ sagði Daníel í samtali við Mannlíf. „Ein af hljómsveitunum sem ég er í, Los Bomboneros, tók upp þessa plötu fyrir um það bil 2 árum síðan og við vorum alltaf að fresta útgáfu út af Covid. Okkur langaði að getað haldið upp á þetta með stæl og þegar það stóð til að koma fram á Jazzhátíð Reykja­víkur slógum við því bara upp sem útgáfu­tónleikum og salsaball í leiðinni núna á laugar­daginn,“ en með Daníel í hljóm­sveitinni eru þau Alexandra Kjeld, Sigrún Krist­björg Jóns­dóttir og Kristofer Rodriguez Svönuson.

Daníel glæsi­legur með gít­ar­inn –

„Svo á meðan þessi vinna var í gangi lagði ég loksins í það að taka upp sólóplötu. Eitthvað sem er búið að vera á dagskránni í mörg ár,“ sagði gítar­leikarinn knái um hans fyrstu sólóplötu. „En ég lét loksins af því verða í byrjun árs og hóaði í þá Birgi Stein Theodórsson, bassa­leikara, og Matthías Hemstock, trommu­leikara, og tók eina æfingu til að renna þessum lögum sem ég var að semja. Svo bókaði ég stúdíóið Sund­laugina í páska­fríinu en náði ekkert að æfa aftur með þeim og hjólaði bara í eina óæfða jazzplötu. Fyrir vikið er þetta allt frekar „spontant“ og lifandi og ég er mjög ánægður með útkomuna. Albert Finnbogason tók plötuna upp og „mixaði“ alveg einstak­lega vel. Hönnun umslags var svo í höndum frænku minnar hennar Bergþóru Jóns­dóttur. Þannig að það endaði bara sem fyndin tilviljun að bæði þessi verkefni voru að gefa út plötur akkúrat á sama tíma og bæði valin inn á Jazzhátíð,“ en sólóplata Daníels kemur út föstu­daginn 25. ágúst og báðir útgáfu­tónleikar hans verða haldnir í Hörpu á Jazzhátíðinni.

En þó að plöturnar komi út nánast á sama degi þá eru þær gjör­ólíkar.

„Það er gígantískur munur á þessum plötum,“ sagði Daníel um muninn á plötunum. „Platan mín, Particles, er einhverskonar ambient free jazz með miklu spila­frelsi og spuna á meðan Los Bomboneros platan, ¡Mambó! er stuðplata með áherslur á afro-latin músík innblásin af norður­hluta Suður-Ameríku og Mið-Ameríku. Það var líka mikill munur á vinnslu þeirra. Particles var unnin frekar hratt því músíkin er þess eðlis að það þarf ekki að eyða miklum tíma í eftir­vinnslu á meðan ¡Mambó! var lengra ferli því það eru fleiri hljóðfæri og söngur og lúmskt erfitt að ná þessu heim og saman. En okkur tókst vel til og platan hljómar mjög „retro“ og gamaldags en samt spennandi hljómur á henni.“

Los Bomboneros –

Daníel og hæfi­leikar hans hafa vakið athygli allt frá því að hann var unglingur að setja lög inn á heima­síðuna rokk.is. Þá hlaut Daníel fyrir verðlaun sem bjartasta vonin í djass og blús flokki á Íslensku tónlistar­verð­laununum árið 2018. Hverju breyttu þau verðlaun fyrir hann?

„Þau breyta í rauninni ekki miklu, þannig séð. Ég er auðvitað mjög þakklátur að fá þessi verðlaun og var líka tilnefndur fyrir fleiri verðlaun það sama ár. Það var kannski svona næstu daga á eftir tónlistar­verðlaunin að maður fór að hugsa hvort þetta myndi eitthvað auka væntingar fólks fyrir því hvað maður væri að gera. En á sama tíma þá eru ekkert margir hérlendis sem fylgjast með spuna-jazz senunni eða latín senunni þannig að ég held að það sé engin auka pressa ef út í það er farið.“

„Það er margt spennandi að gerast hérlendis í öllum senum og gróskan er svo mikil,“ sagði Daníel um íslenskt tónlistarlíf í dag. „Hef mjög gaman af Unu Torfa og Árnýju Margréti því þær eru mjög flottir laga­höfundar. Svo er margt spennandi á Jazzhátíð líka sem ég mæli með að kíkja á eins og trommu­leikarann Óskar Kjartansson sem gaf út stórkost­lega plötu, Gork, í fyrra. Einnig ber að nefna píanistana Benjamín Gísla og Önnu Grétu. Svo eru allskonar spennandi listamenn að koma fram á hátíðinni eins og Insomnia Brass Band sem vann nýverið þýsku jazztónlistarverðlaunin og trommu­leikarinn Gard Nilssen sem leiðir geggjað tríó á hátíðinni í ár.“

Umslag sóló­plötu Daníels – Hönnun: Bergþóra Jóns­dóttir

„Það er bara svolítið upp og niður,“ sagði Daníel um hvernig væri að vera tónlistar­maður á Íslandi. „Stundum er alltof mikið að gera og stundum allt of lítið að gera. Þetta er heilmikið „ströggl“ eins og sagt er og stundum ekki alltaf borið mikla virðingu fyrir því sem maður gerir og þá helst kannski launalega séð. Fólk biður um lifandi músík og hættir að svara tölvu­póstum þegar umræðan um verð kemur upp.“

„Smá hvíld vona ég,“ svaraði Daníel þegar hann var spurður út í fram­haldið. „Búið að taka aðeins á að undirbúa tvær útgáfur og allt tilheyrandi. Kennsla að hefjast og einhverjir tónleikar framundan. Mæli með að fylgja Los Bomboneros á Facebook og Instagram og kíkja á tónleika og dansa. Svo verða líka seinna í vetur tónleikar með mínu efni en það verður auglýst síðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt