Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Segir upptöku evru vera kjarabót: „Varðmönnum krónunnar fækkar og vörnin er orðin hriplek“

„Krónan er frábær að því leyti að hún gefur stjórn­málamönnum skjól fyrir því að þurfa að mæta afleiðingum lélegrar efnahags­stjórnunar. Fyrir aðra er hún ekkert sérstak­lega frábær,“ segir þingmaður Viðreisnar, Hanna Katrín Friðriksson, í aðsendri grein í Morgun­blaðinu:

„Þetta veit almenningur sem enn einu sinni þarf að taka á sig skellinn í formi okurvaxta og hærra matar­verðs. Þetta vita stærstu fyrirtæki landsins sem þegar gera upp ársreikninga sína í erlendum gjald­miðli. Þetta vita verkalýðs­leiðtogar, hagfræðingar og fjár­festar sem einn af öðrum stíga fram með þau skilaboð að upptaka evru væri mesta kjarabót sem heimilunum stæði til boða.

Enginn lætur lengur blekkjast af gömlu tuggunni um að krónan komi okkur til bjargar þegar illa gengur. Ekki einu sinni ráðherrar ríkis­stjórnarinnar. Skjólið er bara svo gott.“

Segir Hanna Katrín að þungi í kröfu um annan gjald­miðil aukist sífellt enda sé krónan beinlínis vond almenningi:

„Stærsta breytingin er kannski sú að í dag getum við auðveldlega séð hvað hlutir kosta í löndunum í kringum okkur. Við förum inn á hvaða vefverslun sem er og sjáum verðlagið erlendis, líka í löndum sem eru háð innflutningi um langar leiðir.

Annar fórnar­kostnaður krónunnar, himinhár vaxta­kostnaður, bítur hraustlega og líka þar sjáum við auðveldlega saman­burðinn við önnur lönd. Enn finnast þó þau sem neita að viðurkenna opinber­lega að tilraunin með krónuna er fullreynd.“

Hún færir í tal að í kosninga­baráttunni árið 2021 hafi fram­bjóðendur Sjálfstæðis­flokksins haldið því fram að sögulegt lágvaxta­skeið væri hafið hér á landi, en að það hafi aðeins enst í fimm mánuði:

„Það kom ekki til vegna snjallrar efnahags­stjórnar ríkis­stjórnarinnar heldur heims­faraldursins. Síðan þá hafa vextir verið hækkaðir 11 sinnum og eru nú þeir hæstu í 13 ár.

Viðreisn mun aldrei hætta að berjast fyrir kjara­bótum fyrir heimilin í landinu.“

Bætir við:

„Á kraft­miklu lands­þingi Viðreisnar um liðna helgi var ályktað hve mikilvægt það væri að skipta um gjald­miðil, að bjóða íslenskum almenningi sann­gjarna vexti, eðlilegt matvöru­verð og fyrirsjáanleika lengra en fram að næstu vaxta­ákvörðun.

Það er ekkert lögmál að íslenskur almenningur þurfi að borga þrefalda vexti á við nágranna sína. Samt er Viðreisn eina stjórnmála­aflið sem þorir að viðurkenna fullum fetum þá staðreynd að tími krónunnar er liðinn.

Utan stjórn­málanna stökkva sífellt fleiri á þann vagn með okkur, nú síðast verkalýðs­forystan. Varð­mönnum krónunnar fækkar að sama skapi og vörnin er orðin hriplek. Það er kannski þess vegna sem Morgun­blaðið hefur hert sóknina gegn málflutningi Viðreisnar, eða öllu heldur gegn Viðreisn – því leiðara­höfundur blaðsins virðist illa treysta sér í að ræða málefnið sjálft ef marka má leiðara gærdagsins. Af hverju þessi varðstaða um krónuna? Af hverju ekki varðstaða um heimili landsins? Kannski verður því svarað í næsta leiðara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim