Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Neitaði að mæta: „Með því að þiggja boðið er ég að leggja blessun yfir hjónaband samkynhneigðra“

Mynd/samsett
Mynd/sam­sett

„Með því að þiggja boðið er ég að leggja blessun yfir hjónaband samkyn­hneigðra,“ sagði  færeyski stjórn­mála­maðurinn Jenis av Rana sem neitaði að sitja við sama borð og Jóhanna Sigurðar­dóttir og maki hennar, Jónína Leós­dóttir, vegna kynhneigðar þeirra, þar sem hann vildi meina að hjónabönd samkyn­hneigðra stríddu gegn vilja guðs. Nú eru 12 ár eru frá opinberri heimsókn þáverandi forsætis­ráðherra Íslands, Jóhönnu Sigurðar­dóttur og eiginkonu hennar Jónínu Leós­dóttur, til Færeyja. 

27. júní sama ár höfðu Jóhanna Sigurðar­dóttir og Jónína Leós­dóttir gengið að eiga hvor aðra í hjóna­bandi, sama dag og ný hjúskaparlög, sem veittu öllum rétt allra óháð kynhneigð, tóku gildi á Íslandi. 

Þing­maðurinn Jenis av Rana var á þessum árum formaður Miðflokksins sem hafði það á stefnu­skrá sinni að Færeyjum skyldi stjórnað eftir lögum Biblíunnar.  

Í frétt Morgun­blaðsins 8. september 2010 var fjallað um heimsókn forsætis­ráðherra í Færeyjum, þar sagði: „Írafár varð í Færeyjum vegna ummæla þingmanna sem sögðu heimsókn Jóhönnu og eiginkonu hennar, Jónínu Leós­dóttur, vera „ögrun“. Einn þeirra, Jenis af Rana, berst ákaft gegn réttindum samkyn­hneigðra. Jenis, sem er leiðtogi kristilega Miðflokksins, segir hjónabönd samkyn­hneigðra brjóta í bága við vilja Guðs. […] Haft var einnig eftir Gerhard Lognberg, þingmanni í Javnaðarflokkurin, systur­flokki Samfylkingarinnar, á vef Nordlysid að hann liti á heimsókn Jóhönnu sem ögrun.“ 

Fordæmdur af mörgum

Málið vakti víða athygli og fordæmt af mörgum var þar á meðal lögmaður Færeyinga Kaj Leo Johannesen sem sagði: „Skammastu þín, Jenis“ í samtali við útvarps­stöðina Kringvarpið.

Í fyrr­greindi frétt Morgun­blaðsins kom einnig fram að: „Högni Hoydal, formaður Þjóðveldis­flokksins í Færeyjum, gagnrýndi einnig Jenis harðlega. Magni Laksáfoss, þingmaður Sambands­flokksins, fordæmdi skoðanir Jenis. „Ég tel að þetta hafi ekkert með Jóhönnu að gera. Ég held að hann sé að hlúa að sínum eigin atkvæðum,“ sagði Laksáfoss.“ 

Í kjölfarið var hann sjálfur sniðgenginn

Í DV 15. september 2010 er þess getið að Jenis hafi í kjölfar framgöngu sinnar og orða verið snið­genginn af dönskum þingmanni. 

„Danski þing­maðurinn Mogens Jensen leggur til að ráðherrar og fulltrúar Norður­landaráðs sitji ekki til borðs með færeyska þing­manninum og flokks­leiðtoganum Jenis av Rana á matmáls­tímum á fundum ráðsins. Í yfir­lýsingu frá Jensen sem birt er á vef jafnaðar­manna í Norður­landaráði fordæmir hann framkomu færeyska þing­mannsins gagnvart Jóhönnu Sigurðar­dóttur forsætis­ráðherra í heimsókn hennar til Færeyja á dögunum, en Jenis av Rana, neitaði þá að sitja til borðs með henni vegna þess að hún er samkyn­hneigð.“

Árni Johnsen vildi sýna umburðarlyndi

Opinberun fordóma Jenis skapaði háværa umræðu um fordóma gegn hinsegin samfélagsins. Árni  Johnsen, þáverandi þingmanns Sjálfstæðis­flokksins, hafði verið í viðtali hjá Pressunni og kom því fram að hann vildi að færeyska þing­manninum yrði sýnt umburðar­lyndi. Þar sagði hann: „Ég vil ekki blanda mér í þessi ummæli hans. Jenis er sérstæður persónu­leiki og mikill grund­vallarmaður og það ber að virða. Færeyingar eru harðskeyttir í meiningum sínum og það ber að virða það þótt við vildum hafa það öðruvísi.“ 

Í leiðara Jóns Trausta Reynis­sonar ritstjóra DV 10. september 2010 svarar hann ummælum Árna og segir að umburðar­lyndi gagnvart kúgun sé afstaða með kúguninni en ekki umburðar­lyndinu. „Íslendingar ættu að standa þétt að baki Jóhönnu og Jónínu og mótmæla einelti færeysku þing­mannanna allir sem einn. Við þurfum að sýna svo ekki verði um villst að við tökum virka afstöðu gegn fordómum en ekki óvirka afstöðu með þeim. Við sitjum ekki hjá og horfum upp á forsætis­ráðherra landsins lagðan í opinbert einelti fyrir kynhneigð sína.“

Framfarir í réttindabaráttunni

Veruleg framfarir hafa átt sér stað í færeysku samfélagi en 2017 eða sjö árum síðar voru hjónabönd samkyn­hneigðra samþykkt á færeyska lögþinginu. Sama það ár var Jóhönnu Sigurðar­dóttur og Jónínu Leós­dóttur boðið að opna gleði­göngu Færeyinga. 

Í frétt hjá RÚV 20. júlí 2017 kemur fram: „Síðan þá hafa miklar framfarir náðst og meðal annars hefur hjónaband samkyn­hneigðra verið lögfest, eins og lesa má á vefnum LGBT.fo, þar sem segir að Færeyjar voru síðasta Norður­landaþjóðin til að leyfa hjónaband samkyn­hneigðra og 23. landið til að gera það á heimsvísu.“

Í frétt frá 20. Júlí 2017 á vísi.is  segir: „Jóhanna Sigurðar­dóttir, sem var fyrsti opinber­lega samkyn­hneigði þjóðar­leiðtogi heims, mun opna áttundu hinsegin gönguna í Færeyjum þann 27. júlí næst­komandi. Jóhönnu er meðal annars boðið að taka þátt í ár til að varpa ljósi á þær framfarir sem hafa átt sér stað í réttinda­baráttu hinsegin fólks í Færeyjum á síðustu árum. […]  Áætlað er að þúsundir muni ganga til stuðnings hinsegin fólki þennan dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum