Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Líf Magneudóttir: Ég er liðtækur aðstoðarkokkur og held manninum mínum félagsskap með masi“

„Þegar ég var hjá ömmu minni Íbí sem krakki þá tók hún á það ráð að koma ofan í mig fiski með því að búa til réttinn Surtsey! Þá stappaði hún saman fisk, kartöflur og smjör og bjó til fjall úr því. Síðan bjó hún til holu í mitt fjallið og lét leka tómatsósu niður „hlíðarnar“. Þetta kallaði hún Surtsey og ég borðaði fiskinn með bestu lyst. Tilþrifin þegar hún útbjó réttinn eru líka eftir­minnileg.

Ég á líka minningar frá því þegar mamma mín tók upp á að lita óhóflega allan skapaðan mat eftir hátíðisdögum. 1. maí var allur matur rauður og á 17. júní var allt í fánalitum. Fimm ára afmælið mitt var líka litríkt og allt sem var boðið upp á hafði mamma litað í regn­bogans litum. Þetta var dáldið flippað tímabili. Því miður áttum við enga myndavél á þessum tíma og því engar myndir til, en hefðum við átt hana hefði það ekki hvarflað að mömmu að eyða dýrmætri filmu í að taka myndir af mat. Ólíkt því sem við þekkjum núna.“  Þetta segir Líf Magneu­dóttir, oddviti Vinstri­hreyfingarinnar – græns framboðs í borgar­stjórn Reykja­víkur, þegar Mannlíf spurði hana út það hvernig kokkur hún væri.

Líf Magneu­dóttir

Hvað er í matinn?

„Ég kann nokkra klassíska einfalda rétti – sem enginn á heimilinu fær leiða á því ég elda þá svo sjaldan. Annars er það maðurinn minn sem er kokkurinn og það fellur í hans hlut að brjóta heilann um hina daglegu spurningu: „Hvað er í matinn?“ Ég er hins vegar liðtækur aðstoðar­kokkur og held honum félags­skap með masi og sker kannski niður grænmetið.“

Líf segist elska eiginlega allt með hvítlauki og tómat­púrru.

„Ef það er nóg af öðru hvoru er ég sátt, sérstak­lega ef það er hvít­laukur í réttum. Annars eru afganga­kvöldin oft best. Þá eru afgangar vikunnar lagðir á borð og það er eitthvað fyrir alla. Við hendum aldrei mat og reynum að kaupa aldrei of mikið heldur bara akkúrat passlegt. Það er samt alltaf eitthvað sem gengur ekki út og reglulega er boðið upp á afganga vikunnar á heimilinu. Afganga-kvöldverðurinnn hefur stundum leitt okkur á nýjar slóðir því stundum gerum við eitthvað nýtt úr þeim sem verður að sjálf­stæðum rétti.“

Royal-búðingur í litlum glösum

Aðspurð hvað henni finnist skemmtilegast að nota í teitin segir hún:

„Það fer auðvitað eftir tilefninu en heitir brauð­réttir og rækjur í chili og kóríander hafa gefist vel í okkar veislum. Mæli líka með Royal-búðingi í litlum glösum. Vekur alltaf lukku! Aðspurð hvað eigi að bjóða upp á í stórum veislum sting ég eiginlega alltaf fyrst upp á súpu. Og þá auðvitað tómatsúpu með hvítlauk. En það er ekki nema að ég geri hana sjálf að hún sé á boðstólum í okkar veislum.“

Hvernig er dæmigerður dagur hjá Líf?

„Ég bý til hafra­graut á hverjum einasta virka morgni fyrir mig og næstelsta strákinn minn. Hann borðar grautinn með hnetu­smjöri, döðlum og hafra­mjólk. Minn grautur er hins vegar aldrei alveg eins. Oft bæti ég hnetum, fræjum og berjum og ávöxtum við, en nota alltaf hafra- eða möndlu­mjólk. Allar hinar máltíðir dagsins eru háðar aðstæðum; hvort ég sé á hlaupum að gera hitt og þetta eða á fundum eða hvort ég hafi yfirhöfuð tíma til að borða kvöldmat. Stundum gleymi ég hreinlega að borða allan daginn vegna anna. (Þarf að muna að eiga hnetur í poka í töskunni minni eða taka með mér epli á morgnana.)“

Miðjarðar­hafsfæði og japanska eldhúsið standa upp úr hjá Líf.

„Ég hef annars í seinni tíð lagt áherslu vist­kerafæði og reyni að kaupa sem mest lífrænt þegar því verður við komið. Ferskir ávextir, pasta, grænmeti og nýbakað brauð er það sem mér finnst best.

Chili-rækjur

Poki af rækjum

lime/sítróna

ferskt engifer – rifið

2 chili – saxað niður

handfylli kóríander – saxað

ólífuolía

Aðferð:

„Rækjurnar settar í skál. Engifer, chili og kóríander skorið fínt niður. Safinn úr lime/sítrónu kreistur yfir. Látið liggja í góðri ólífuolíu. Borið fram kælt. Ávextir, pasta, grænmeti og nýbakað brauð er það sem mér finnst best,“ segir Líf en bætir jafnframt við að kjúklingur, naut og svín sé það allra versta sem hún viti um og hún biðji aldrei um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto